7.okt

Handavinnuklúbburinn Hnotan

Handavinnuklúbburinn Hnotan

Langar þig til að prjóna, hekla, sauma og spjalla í góðum félagsskap?

Yfir vetrartímann hittist handavinnuklúbburinn Hnotan á Amtsbókasafninu og er öllum velkomið að taka þátt í, hvort sem um ræðir eitt skipti eða öll.

Klúbburinn hittist á kaffihúsi safnsins, Orðakaffi, annan hvern fimmtudag. Svala Hrönn Sveinsdóttir, bókavörður, verður á staðnum með handavinnublöð og tímarit. Athugið að ekki er um kennslu í handavinnu að ræða, heldur er frekar lögð áhersla á góðan félagsskap og að hópurinn hjálpist að innbyrðis. Öll eru velkomin með prjóna, heklunálar og aðra handavinnu.

Engin þörf er á að skrá sig í hópinn, nóg er að mæta á staðinn. Nánari upplýsingar veitir Svala á netfanginu svala@amtsbok.is.