Upplýsingar um viðburð
HANDAVINNUHÓPURINN HNOTAN
Langar þig til að prjóna, hekla, sauma og spjalla í góðum félgsskap?
Í vetur fer Amtsbókasafnið aftur af stað með handavinnuhóp sem öllum er velkomið að taka þátt í, hvort sem um ræðir eitt skipti eða öll.
Handavinnuhópurinn Hnotan hittist á kaffihúsi safnsins, Orðakaffi, annan hvern miðvikudag kl. 17:00-18:30. Guðrún Hulda Sigtryggsdóttir bókavörður, verður á staðnum með kaffi, handavinnublöð og -tímarit. Athugið, ekki er um kennslu í handavinnu að ræða, heldur er frekar lögð áhersla á góðan félagsskap og að hópurinn hjálpist að innbyrðis. Allir eru velkomnir með prjóna, heklunálar og aðra handavinnu.
Engin þörf er á að skrá sig í hópinn, nóg er að mæta á staðinn. Nánari upplýsingar veitir Guðrún Hulda á netfanginu gudrunh@akmennt.is
Handavinnuklúbburinn er á Facebook.
Prjóna''fundir'' verða á eftirfarandi dögum:
7. nóvember
21. nóvember
5. desember