24.apr

Handavinnuhópurinn Hnotan

Handavinnuhópurinn Hnotan

Langar þig til að prjóna, hekla, sauma og spjalla í góðum félgsskap? 

Á nýju ári fer Amtsbókasafnið aftur af stað með handavinnuklúbb, sem öllum er velkomið að taka þátt í, hvort sem um ræðir eitt skipti eða öll.

Klúbburinn mun hittast á kaffihúsi safnsins, Orðakaffi, annan hvern miðvikudag kl. 17:00-18:30. Guðrún Hulda Sigtryggsdóttir, bókavörður, verður á staðnum með kaffi, handavinnublöð og -tímarit. Athugið, ekki er um kennslu í handavinnu að ræða, heldur er frekar lögð áhersla á góðan félagsskap og að hópurinn hjálpist að innbyrðis. Allir eru velkomnir með prjóna, heklunálar og aðra handavinnu. Hópurinn mun hittast næst þann 24. apríl.

Hópurinn verður með aðstöðu á 1. hæð safnsins, þar sem Orðakaffi er staðsett.

Engin þörf er á að skrá sig í hópinn, nóg er að mæta á staðinn. 

Handavinnuklúbburinn er á Facebook.

Hópurinn mun hittast á eftirfarandi dögum:  

  • 16. janúar
  • 30. janúar
  • 13. febrúar
  • 27. febrúar
  • 13. mars
  • 27. mars
  • 10. apríl
  • 24. apríl
  • 8. maí

Allir hjartanlega velkomnir!