Upplýsingar um viðburð
Þá er komið að fyrstu sögustund haustsins 2021!
Bókin sem verður lesin er Tröllastrákurinn eignast vini, eftir Sigríði Arnardóttur.
Tröllastráknum Vaka leiðist stundum, hann á enga vini. En dag nokkurn kynnist hann Sögu sem er mannabarn. Hann hjálpar henni að byggja kofa. Það eru ekki allir jafn hrifnir af þessum tröllastrák en Saga á gott ráð við því.
Sögustundir eru á fimmtudögum klukkan 16:30 inni í barnadeild. Lesnar eru 1-2 bækur, síðan er börnum og foreldrum boðið að staldra við og lita, föndra eða skoða bækur.