19.feb

Borðspil fyrir fullorðna

Borðspil fyrir fullorðna

Einu sinni í mánuði er Amtsbókasafnið með borðspilaviðburð fyrir fullorðna. Viðburðirnir fara fram á kaffihúsi safnsins, Orðakaffi.
Gestum standa til boða öll spil úr spiladeild safnsins en þátttakendur eru jafnframt hvattir til þess að koma með sín eigin spil og kenna öðrum.

Allir hjartanlega velkomnir, bæði byrjendur og langt leiddir spilanördar.
Engin þörf er að skrá sig fyrirfram, nóg er að mæta á staðinn.

Hrönn Björgvinsdóttir heldur utan um borðspilaviðburði og leiðir hópinn. Nánari upplýsingar veitir Hrönn á netfanginu hronnb@amtsbok.is