Ertu að flytja í bæinn?

Ertu að flytja í bæinn?

Á Akureyri búa rúmlega 17.000 manns. Þar er að finna alla þá þjónustu, menningu og afþreyingarkosti sem milljónaborgir í Evrópu gætu verið stoltar af. Kannanir á viðhorfum íbúa sýna að þeir eru ánægðir með bæinn sinn, skólakerfið, nálægðina við náttúruna, veðurfarið og menningarlífið svo fátt eitt sé nefnt. Við bjóðum alla velkomna til bæjarins. Hér að neðan er að finna upplýsingar um ýmis hagnýt atriði sem gagnast þeim sem eru að flytja til Akureyrar.

Flutningstilkynning

Það er allra hagur að tilkynnt sé um flutning til bæjarins sem fyrst. Samkvæmt reglum ber að tilkynna um flutning til íbúaskrár innan viku frá flutningi. Ef þú hefur ekki aðgang að tölvu þarf að koma í íbúaskrá og skrifa undir tilkynninguna. Íbúaskrá er til húsa á fyrstu hæð Ráðhúss Akureyrar að Geislagötu 9. Þar er opið frá kl. 8-16 alla virka daga. Sími 460 1016.

Hægt er að tilkynna flutning með tölvupósti á netfangið brynjab@akureyri.is þar þarf að koma fram: dagsetning flutnings, fyrra heimilisfang, nýtt heimilisfang, nafn og kennitala þeirra sem flytja og nafn þess sem tilkynnir. Einnig er hægt að nálgast eyðublöð hjá Þjóðskrá (www.thjodskra.is).

Athugið að einnig er nauðsynlegt að tilkynna breytt heimilisfang til póstsins. Hægt er að gera það á slóðinni www.postur.is undir "Einstaklingar" eða fara á pósthúsið, Strandgötu 3.

Heimilislæknir

Allar upplýsingar um heimilislækna og aðra læknaþjónustu er að hafa á heilsugæslustöðinni í síma 460 4600.

Heilsugæslustöðin er til húsa að Hafnarstræti 99, 3.-6. hæð. Inngangur er frá göngugötu (Amaróhúsið), frá Hafnarstræti 97 (Krónan 5. hæð) og frá Gilsbakkavegi í gegnum Krónuna. Þar eru bílastæði fyrir fatlaða.

Heimilislæknar sinna almennri móttöku og vaktþjónustu ásamt heilsuvernd, s.s. mæðravernd, ungbarnavernd og heilsugæslu í skólum. Samskipti við lækna eru í aðalatriðum:

  • Í fyrirfram pöntuðum viðtalstímum
  • Á bráðadagvakt kl. 15-16 daglega fyrir bráðatilvik, sem tekur stuttan tíma að leysa úr (þegar ekki er unnt að fá tíma hjá heimilislækni samdægurs)
  • Í símatímum, sem ætlaðir eru fyrir fyrirspurnir og mjög fljótafgreidd erindi
  • Með vitjunum í heimahús
  • Á vaktmóttöku heimilislækna á slysadeild Fjórðungssjúkrahússins á Akureyri, sem er opin 17-21 virka daga en 10-12 og 14-16 um helgar

Innritun barna í skóla og leikskóla

Innritun barna í grunnskóla fer fram hjá skólastjóra í viðkomandi skólahverfi og hjá skóladeild. Upplýsingar um skólahverfin er hægt að nálgast hjá skóladeild í síma 460 1455.

Um leikskólapláss verður að sækja skriflega á skóladeild, Glerárgötu 26, eða í þjónustuanddyri í Geislagötu 9. Einnig má nálgast rafrænt umsóknareyðublað á heimasíðu Akureyrarbæjar. Heimilt er að sækja um leikskólapláss þó svo að viðkomandi eigi ekki lögheimili í bænum en plássum er þó aðeins úthlutað til þeirra sem eiga lögheimili á Akureyri.

Ráðhús Akureyrarbæjar
Geislagötu 9
600 Akureyri
Sími: 460 1000

Skóladeild
Glerárgötu 26
600 Akureyri
Sími: 460 1455

Hiti og rafmagn

Norðurorka sér bæjarbúum Akureyrar fyrir bæði hita og rafmagni. Skrifstofa Norðurorku er að Rangárvöllum, sími 460 1300.

Sími

Þú getur flutt gamla númerið með þér hvert á land sem er. Hins vegar þurfa þeir sem eru að byrja að búa í fyrsta skipti að sækja um nýtt símanúmer á þjónustustöðum Símans eða í síma 800 7000.

Síminn og Vodafone bjóða ýmis konar símaþjónustu á Akureyri.

Vodafone er með verslun og þjónustu á Glerártorgi sem er opin mánud.-föstud. 10-18.30, laugard. 10-17, sunnud. 13-17.

Síminn Akureyri er með verslun og þjónustu á Glerártorgi og þjónar Norðurlandi eystra. Verslunin er opin alla virka daga frá kl. 10-18.30, laugard. 10-17, sunnud. 13-17.

Sími: 460 6700
Fax: 460 6709 & 460 6719
Netfang: Siminn.Akureyri@simi.is

Fasteignasölur

Á Akureyri starfa eftirtaldar fasteignasölur:

Eignamiðlun Norðurlands
Hafnarstræti 101
Símar: 461 2900 / 660 2951
Fax: 461 2902
Netfang:en@en.is
Veffang: www.en.is

 

Fasteignasalan Byggð
Strandgötu 29
Sími: 464 9955
Fax: 464 9956
Netfang: bjorn@byggd.is
Veffang: www.byggd.is

 

Fasteignasalan Eignakjör
Skipagötu 16
Sími: 455 1400
Fax: 455 1401
Netfang: eignakjor@eignakjor.is
Veffang: www.eignakjor.is

 

Fasteignasalan ehf
Hofsbót 4
Sími: 462 1878 / 861 5025
Fax: 461 1878
Netfang: fasteing@est.is
Veffang: www.fasteignak.is

 

Framtíðareign ehf. - fasteignasala
Hafnarstræti 88
Sími: 462 7400
Fax: 462 7401
Netfang: gisli@framtidareign.is
Veffang: www.framtidareign.is

 

Fasteignasalan Holt
Strandgötu 13
Sími: 461 3095
Fax: 461 1227
Netfang: arnar@holtfasteign.is
Veffang: www.holtfasteign.is

Gellir fasteignasala
Hafnarstræti 83
Sími: 461 2010 / 891 8363
Fax: 461 2019
Veffang: www.gellir.is

Hvammur Fasteignasala
Hafnarstræti 99 -101
Sími: 466 1600
Fax: 466-1655
Netfang: kaupa@kaupa.is
Veffang: www.kaupa.is

Domus Fasteignasala
Hafnarstræti 91
Sími: 440 6110
Fax: 460 6111
Netfang: domus@domus.is
Veffang: www.domus.is

Remax Akureyri ehf.
Sunnuhlíð 12
Sími: 412 1600 / 698 4450
Fax: 412 1610
Netfang: ingi@remax.is
Veffang: www.remax.is/midlun

 

Félagslegar leiguíbúðir

Akureyrarbær rekur 256 félagslegar leigubúðir og er tilgangurinn með rekstri íbúðanna að tryggja einstaklingum og fjölskyldum, sem ekki hafa greiðslugetu til að kaupa sér íbúð, öruggt húsnæði á viðráðanlegum kjörum. Í gildi eru skýrar reglur um hverjir hafa rétt á að fara á biðlista. Reglurnar voru samþykktar í bæjarstjórn Akureyrar 14. desember 2004. Helstu skilyrði sem umsækjandi þarf að uppfylla eru:

  • Tekjumörk sem bundin eru fjölskyldustærð
  • Eignamörk
  • Hafi ekki greiðslugetu samkvæmt greiðslumati til íbúðarkaupa með viðbótaláni
  • Búi við óöryggi í húsnæðismálum eða ófullnægjandi húsnæðisaðstöðu

Umsóknareyðublað og reglur um úthlutun má nálgast í þjónustuanddyri að Geislagötu 9 eða á heimasíðu Akureyrarbæjar.

 

Húsaleigubætur

Húsaleigubætur eru greiddar til leigjenda að uppfylltum ákveðnum skilyrðum og er markmiðið með greiðslu bótanna að lækka húsnæðiskostnað tekjulágra leigjenda og draga úr aðstöðumun á húsnæðismarkaði.

Umsóknareyðublað fyrir húsaleigubætur má nálgast á heimasíðu Akureyrarbæjar. Jafnframt má nálgast upplýsingar á heimasíðu félagsmálaráðuneytisins www.stjr.is en þar er hnappur fyrir húsaleigubætur. Umsóknareyðublöð, lög og reglugerðir um greiðslu húsaleigubóta liggja frammi í Þjónustuanddyri að Geislagötu 9 og má skila umsóknum þangað eða póstsenda á Húsnæðisdeild Akureyrar, Geislagötu 9. Húsaleigubótafulltrúi, Hjálmar Árnason, hjalmar@akureyri.is, sér um afgreiðslu umsókna og veitir jafnframt nánari upplýsingar.

Senda grein





Útlit síðu:

Haus_Blaakannan

Þetta vefsvæði byggir á Eplica