Þjónusta

Akureyri leggur áherslu á að veita einstaklingum og fjölskyldum fyrirmyndar búsetuaðstæður og faglega þjónustu. Sérstök áhersla er lögð á góða leik- og grunnskóla, fjölbreytta íþrótta- og tómstundastarfsemi og að á Akureyri þrífist frjótt og öflugt lista- og menningarlíf.

Sumarfrístund

Íþróttafélögin í bænum bjóða íþróttanámskeið fyrir börn og unglinga yfir sumartímann. Það gera einnig skátarnir, siglingaklúbburinn Nökkvi og fleiri aðilar. Nánari upplýsingar verða birtar hér þegar líður að sumri.


Útilífsskólinn býður upp á viku ævintýranámskeið þar sem boðið er upp á margvíslega fræðslu, leiki, og útiveru. Námskeiðin eru í 6 klst á hverjum degi en sú nýbreytni verður tekin upp hjá útilífsskólanum í sumar að í boði verða tvö námskeið í hverri viku. Í sumar verða í boði námskeið fyrir 5-6 ára svokallað ,,grallaranámskeið" og ef þátttaka verður góð verður bætt við námskeiðum fyrir þann aldur.

Boðið verður upp á sumarnámskeið sem fara fram einu sinni í viku, á miðvikudögum kl. 17.00-18.30. Byggt verður á dagskrá Útilífsskólans og skátastarfi og verður því megin áherslan á útilíf, leiki og fræðslu. Starfinu verður skipt í þrjá aldurshópa 6-8 ára, 9-11 ára og 12-15 ára. Kostnaðurinn við þetta námskeið er 6.500 kr.

Þessi námskeið hefjast miðvikudaginn 13. júní.

Allir leiðbeinendur hafa starfað um árabil með börnum og unglingum í skátastarfi. Þeir hafa hlotið þjálfun í skátun hjá Bandalagi íslenskra skáta, sótt sérstök námskeið fyrir starfsfólk sumarnámskeiða og skyndihjálparnámskeið.


Barnastarf Siglingaklúbbsinns Nökkva hefur verið í stöðugum vexti undan farin ár. U.þ.b. 200-250 krakkar koma á námskeið á hverju sumri. Námskeiðin hafa verið kennd viku í senn fyrir eða eftir hádegi. Fjölmörg börn sækja námskeiðin megnið af sumrinu. Það er markmið klúbbsinns að veita krökkunum fræðslu um hafið og meðhöndlun á bátum klúbbsinns. Þeir krakkar sem koma á námskeið klúbbsinns eiga að verða orðin meðvituð um þá virðingu sem bera þarf fyrir hafinu. Við viljum auka sjáfstraust barnanna með því að fela þeim þá ábyrgð sem fylgir því að vera skipstjóri á eigin skipi.

Kennd eru undirstöðuatriði á seglbáta, kæjak, kanó, árabáta. Það eru kenndir hnútar og farið í veiðiferðir og síðast en ekki síst er farið ýtarlega í öryggis atriði er varða sjómennsku. Á vikunámskeiði er hægt að vænta þess að krakkarnir hafi kynnst öllum þessum atriðum en að sjálfsögðu getur veðrið sett strik í reikningin hvað varðar bátanna. Það hefur verið hefð fyrir því að ljúka námskeiðum með því að sigla þvert yfir fjörðin og grilla þar í fjörunni og sigla til baka með fullan maga og mikið sjálfstraust.

Siglinganámskeiðin eru fyrir alla krakka á aldrinum 9-15 ára. Stráka og Stelpur. Það hefur oft verið þannig að krakkar sem finna sig ekki í hefðbundnum íþróttum sækja námskeiðin mikið. Siglingar á seglbátum er fjölskyldu áhugamál sem stundað er um allan heim. Það geta allir siglt. Einnig eru siglingar ólympísk keppnisgrein sem er mjög mikið stunduð erlendis. Á Íslandi eru u.þ.b. 40 krakkar sem stunda siglingar sem keppnisgrein og erum við í Nökkva ákaflega stolt að vera öflugasti klúbbur landsinns.

Siglingar eru mjög örugg íþrótt og eru siglingar með þeim íþróttum sem hafa hvað minnsta slysatíðni í heiminum. Hjá Nökkva fara allir starfsmenns klúbbsinns á skyndihjálparnámskeið á vorin áður en námskeið hefjast. Einnig er siglingaklúbburinn vel tækjum búin til að bjarga krökkunum eftir misheppnaðar sjóferðir. Það getur jú vissulega gerst að krakkarnir velti bátunum en aldrei hefur það gerst að nokkrum hafi orðið meint af. Kostnaður er afstætt hugtak í siglingum en hér á Íslandi er aðalkostnaðurinn falin í fatnaði. Klúbbarnir skaffa báta og björgunarvesti en krakkarnir þurfa að skaffa fatnað. Flestir þeir sem koma á námskeið þurfa bara pollagalla og stígvel en ætli krakkarnir að hefja æfingar mælum við með kaupum á blautgöllum og skóm. Verð á slíkum búnaði er frá 5000 kr. Og uppúr. Það má segja að hægt sé að koma sér upp búnaði fyrir sama verð og á góðum takkaskóm.

Það að vera að sigla seglum þöndum á sólríkum degi á pollinum er reynsla sem flestir búa að alla ævi. Siglingar er afþreying sem kennir krökkum meira en orð fá lýst, því þeir öðlast miklu meiri skilning á náttúrunni og hafinu heldur en í öðrum íþróttum. Því miður eru krakkar sífellt að verða minna og minna meðvituð um umhverfið og hafið og er okkar markmið að treysta þau tengsl.

Nánari upplýsingar HÉR.


Reiðskólinn hefst um svipað leyti og grunnskóla lýkur á vorin þ.a.s. í byrjun Júní. Hvert námskeið er fimm dagar frá mánudegi til föstudags og hefst alla daga kl 8.00 og stendur til kl 12.00. Námskeiðin eru ætluð börnum á grunnskóla aldri. Krakkarnir koma með nesti alla dagana nema föstudaga en þá er grillað fyrir þau.

Reynt verður að skipta námskeiðunum þannig að byrjendur verði aðra vikuna en vanir þá næstu. Byrjendahópur er fyrir þá sem hafa litla sem enga reynslu af hestum og er byrjað á að kenna undirstöðuatriði í umgengni við hesta sem og í reiðmennsku. Í framhaldi er svo kennd áseta og stjórnun. Fyrir þá sem eru lengra komnir er meira lagt uppúr reiðtúrum og að nemandinn nái góðri tengingu við hestinn. Fyrir allra yngstu krakkanna (leikskólabörn) er hægt að panta hjá okkur og er þá teymt undir þeim.

Hestaleigan Kátur, Kaupangi, símar 695 7218 / 847 2208.





Útlit síðu:

Haus_kirkja3

Þetta vefsvæði byggir á Eplica