Þjónusta

Akureyri leggur áherslu á að veita einstaklingum og fjölskyldum fyrirmyndar búsetuaðstæður og faglega þjónustu. Sérstök áhersla er lögð á góða leik- og grunnskóla, fjölbreytta íþrótta- og tómstundastarfsemi og að á Akureyri þrífist frjótt og öflugt lista- og menningarlíf.

Menning

Menning

Söfnin á Akureyri eru óþrjótandi uppspretta fróðleiks, fegurðar og skemmtunar. Listasafnið í Gilinu er ein helsta skrautfjöðurin, enda hafa sýningarnar þar vakið verðskuldaða athygli allra landsmanna. Minjasafnið er rótgróið safn þar sem má á aðgengilegan hátt fræðast um þróun byggðar á svæðinu, allt frá landnámi til okkar daga. Akureyrarbær hefur fóstrað sum ástsælustu skáld Íslendinga. Má þar til dæmis nefna Davíð Stefánsson, Matthías Jochumsson og Jón Sveinsson, Nonna. Í bænum eru rekin söfn og fræðasetur í minningu þeirra, þ.e.a.s. Davíðshús, Sigurhæðir og Nonnahús.

Fleiri söfn má nefna, svo sem Flugsafn og Iðnaðarsafn, og ekki má heldur gleyma Leikfélagi Akureyrar, eina atvinnuleikhúsinu utan höfuðborgarsvæðisins, og Sinfóníuhljómsveit Norðurlands, hvort tveggja eru skrautfjaðrir í hatti bæjarins.

Menningarmiðstöðin í Ketilhúsinu, Listagili

Menningarmiðstöðin í Listagili er í eigu Akureyrarbæjar og heyrir undir menningardeild bæjarins. Forstöðumaður Menningarmiðstöðvarinnar hefur aðsetur og skrifstofu í Ketilhúsinu í Listagili. Hlutverk forstöðumanns er að vinna við og bera ábyrgð á þeirri þjónustu sem Akureyrarbær veitir í Listagili, nánar tiltekið í fjölnotahúsunum Ketilhúsi og Deiglu og í tengslum við vinnustofur og gallerí sem bærinn leigir út. Forstöðumaður hefur jafnframt daglega umsón með starfsemi í skáldahúsunum Davíðshúsi og Sigurhæðum og sér um útleigu á aðstöðu þeirri sem þar býðst. Forstöðumaður skipuleggur, ásamt starfsfólki Akureyrarstofu, stærri viðburði sem Akureyrarbær hefur með höndum svo sem Listasumri á Akureyri og Akureyrarvöku.

Skráið viðburði í bænum með því að senda tölvupóst á netfangið Akvaka-annarichardsvidburdir@akureyri.is.

Menningarmiðstöðin Listagili
Forstöðumaður, Valdís Viðars
Ketilhúsinu
Pósthólf 115
602 Akureyri
Sími: 466-2609
www.listagil.akureyri.is
Netfang: listagil@listagil.is





Útlit síðu:

Haus_midbaer

Þetta vefsvæði byggir á Eplica