Þjónusta

Akureyri leggur áherslu á að veita einstaklingum og fjölskyldum fyrirmyndar búsetuaðstæður og faglega þjónustu. Sérstök áhersla er lögð á góða leik- og grunnskóla, fjölbreytta íþrótta- og tómstundastarfsemi og að á Akureyri þrífist frjótt og öflugt lista- og menningarlíf.

Heimsending á mat

Heimsendur matur

Aðsetur

Búsetudeild, Glerárgötu 26, 2. hæð, 600 Akureyri.

Sími

460-1410

Bréfasími

460-1414

Afgreiðslutími

Skrifstofan opin alla virka daga frá 8:00 – 16:00.

Tengiliður

Gunnlaug Friðriksdóttir sími 460-1410, netfang gulla@akureyri.is

Fyrir hverja

Þeir sem ekki geta annast matseld sjálfir eiga kost á að fá heimsendan mat. Boðið er upp á mat í hádeginu alla daga. Greitt er samkvæmt gjaldskrá sem hægt er að nálgast hér.

Allar óskir um breytingar og tilkynningar um fjarveru þurf að berast til Búsetudeildar í síma 460-1410.

Umsóknir

Umsóknir um heimsendan mat skulu berast til Búsetudeildar Akureyrarbæjar á umsóknareyðublöðum um heimaþjónustu. Eyðublöðin er hægt að nálgast á búsetudeild og í þjónustuanddyri Akureyrarbæjar Geislagöt 9. Einnig er hægt að nálgast þau hér á síðunni.

Starfshópur sem skipaður er af deildarstjóra Búsetudeildar metur þjónustuþörf.

 





Útlit síðu:

Haus_Blaakannan

Þetta vefsvæði byggir á Eplica