Þjónusta

Akureyri leggur áherslu á að veita einstaklingum og fjölskyldum fyrirmyndar búsetuaðstæður og faglega þjónustu. Sérstök áhersla er lögð á góða leik- og grunnskóla, fjölbreytta íþrótta- og tómstundastarfsemi og að á Akureyri þrífist frjótt og öflugt lista- og menningarlíf.

Heilsueflandi heimsóknir

Heilsueflandi heimsóknir eru hugsaðar sem fyrirbyggjandi heilsuvernd.

Þær felast í því, að íbúum 75 ára og eldri á svæði Heilsugæslustöðvarinnar á Akureyri, sem búa heima og njóta ekki heimahjúkrunar er boðið upp á heimsókn heilbrigðisstarfsmanns einu sinni til tvisvar á ári. Þjónustan er samvinnuverkefni Heilsugæslustöðvarinnar á Akureyri og Búsetudeildar Akureyrarbæjar.

Árið sem einstaklingur verður 75 ára fær hann sendan kynningarbækling um heilsueflandi heimsóknir og síðar á árinu fær viðkomandi bréf með tilboði um heimsókn.

Í heilsueflandi heimsókn er lögð áhersla á:

 

  • að hvetja og styrkja til að viðhalda heilbrigði, færni og sjálfstæði sem lengst.
  • að stuðla að öryggiskennd og vellíðan á eigin heimili eins lengi og mögulegt er.
  • að veita upplýsingar um félagsstarf og þjónustu sem í boði er.
  • að veita ráðgjöf og meta í samráði við íbúa hvernig gengur að takast á við daglegt líf á sem bestan mögulegan  hátt  miðað við aðstæður hvers og eins.

 

Aðsetur: Búsetudeild, Glerárgötu 26, 2. hæð, 600 Akureyri, Sími: 460-1410

 

Tengiliðir: Inga Dagný Eydal, hjúkrunarfræðingur,  netfang, ingaey@akureyri.is 

                   Símatími: þriðjudaga, miðvikudaga og fimmtudaga kl. 8-9, sími: 460-1447

                   Kristín Tómasdóttir, iðjuþjálfi, netfang, kristint@akureyri.is

                   Símatími: mánudaga og fimmtudaga kl. 8-9, sími: 460-1477

                    

Einnig er hægt að koma skilaboðum til starfsmanna milli kl. 8-16 alla virka daga í síma 460-1410 eða senda tölvupóst á neðangreind netföng.

 

                       

                       


 







Útlit síðu:

Oldrunarheimili1

Þetta vefsvæði byggir á Eplica