Þjónusta

Akureyri leggur áherslu á að veita einstaklingum og fjölskyldum fyrirmyndar búsetuaðstæður og faglega þjónustu. Sérstök áhersla er lögð á góða leik- og grunnskóla, fjölbreytta íþrótta- og tómstundastarfsemi og að á Akureyri þrífist frjótt og öflugt lista- og menningarlíf.

Gámasvæði, sorphirða o.fl.

Framkvæmdamiðstöð

  • Heimilisfang: Framkvæmdamiðstöð Rangárvöllum
  • Sími: 460 1200

Framkvæmdamiðstöð Akureyrarbæjar annast hreinsun gatna og opinna svæða í bænum, slátt og almenna umhirðu á landi bæjarins. Ef bæjarbúar verða varir við rusl á almannafæri þá vinsamlegast látið vita í síma 460 1200.


Á framkvæmdamiðstöð hefur nú verið komið á skipulegri vakt utan venjulegs vinnutíma, þ.e. á tímabilinu kl. 17.30 til kl. 07.30 alla virka daga. Um helgar og á lögbundnum frídögum er vakt allan sólarhringinn.

Hlutverk vaktmanns er að taka á móti og leysa úr vandamálum er upp koma á þessum tíma, sem ekki þola bið og snerta á einhvern hátt starfsemi framkvæmdamiðstöðvar.

Sími vaktmanns er 860 9300

Hlutverk framkvæmdamiðstöðvar er m.a:

  • Að hafa umsjón með og veita þjónustu vegna reksturs og viðhalds gatan og gangstíga ásamt umferðamerkingum.
  • Fegrun og hirðing bæjarins og umsjón með vinnuskóla.
  • Rekstur fráveitu, gámasvæðis og sorphirðu.
  • Meindýravarnir, búfjár- og gæludýraeftirlit o.fl


Sorphirða:

Almenn sorphirða er á vegum framkvæmdamiðstöðvar Akureyrarbæjar að Rangárvöllum, sími 460 1212. Yfirmaður er Gunnþór Hákonarson, sími 460 1203.


Dýraeftirlit:

Þengill Stefánsson, umsjónarmaður jarðeigna, dýraeftirlits og meindýravarna, er með símanúmer 460 1205 og       860 9310.


Gámasvæði Akureyrar við Réttarhvamm:

Opið á sumrin (16. maí til 15. ágúst):

Mánudaga til föstudaga kl. 16.00- 20.30.

Laugardaga og sunnudaga kl. 13.00 - 17.00.

Yfir vetrartímann (16. ágúst til 15. maí):

Mánudaga til föstudaga kl. 16.00 - 18.30.

Laugardaga og sunnudaga kl. 13.00 - 17.00.


Málmar og brotajárn:

Hringrás ehf.
Ægisnesi 1, Akureyri.
Sími: 462 4281.

Opið mánudaga-fimmtudaga kl. 8.00-12.00 og 13.00-18.00 Föstudaga kl. 8.00-12.00 og 13.00-16.00 og laugardaga kl. 10.00-16.00.


Allar upplýsingar um flokkun úrgangs, endurvinnslu o.fl. eru á heimasíðu Flokkunar, www.flokkun.is

Skýrsla Línuhönnunar um sorphirðu á Akureyri, desember, 2004





Útlit síðu:

Haus_Blaakannan

Þetta vefsvæði byggir á Eplica