Þjónusta

Akureyri leggur áherslu á að veita einstaklingum og fjölskyldum fyrirmyndar búsetuaðstæður og faglega þjónustu. Sérstök áhersla er lögð á góða leik- og grunnskóla, fjölbreytta íþrótta- og tómstundastarfsemi og að á Akureyri þrífist frjótt og öflugt lista- og menningarlíf.

Félagsleg aðstoð

Félagsleg aðstoð

Félagsleg aðstoð

Á Fjölskyldudeild er veitt félagsleg aðstoð af ýmsum toga. Þjónustan stendur  íbúum Akureyrar til boða og einnig hafa  nágrannasveitarfélögin, Arnarneshreppur, Eyjafjarðarsveit, Grýtubakkahreppur Hörgárbyggð og Svalbarðstrandahreppur gert samning við Akureyrarbæ um ráðgjafarþjónustu. Sérhæfð þjónusta fyrir fatlaða er einnig veitt íbúum Dalvíkurbyggðar, Grímseyjar og Ólafsjarðar skv. sérstökum þjónustsamningi við Félagsmálaráðuneytið.  

Markmið með félagslegri aðstoð á Fjölskyldudeild er að koma einstaklingum og fjölskyldum til aðstoðar í tímabundnum erfiðleikum.  Markmið aðstoðarinnar til lengri tíma er alltaf að viðkomandi verði sjálfbjarga.  Beitt er félagslegri ráðgjöf og tiltækum félagslegum úrræðum.

 

Þegar um fatlað fólk og fjölskyldur fatlaðra barna er að ræða  er aðstoð oft til lengri tíma og markmið með þeirri þjónustu er að fatlaðir njóti sömu tækifæra og lífsgæða eins og aðrir.

 

 

 

 

 

Félagsþjónusta á Fjölskyldudeild

 

 





Útlit síðu:

Haus_midbaer

Þetta vefsvæði byggir á Eplica