Þjónusta
Þjónusta
Akureyri leggur áherslu á að veita einstaklingum og fjölskyldum fyrirmyndar búsetuaðstæður og faglega þjónustu. Sérstök áhersla er lögð á góða leik- og grunnskóla, sem eru meðal þeirra bestu á landinu, að næg tækifæri séu til að stunda hvers konar íþrótta- og tómstundastarfsemi og að á Akureyri þrífist frjótt og öflugt lista- og menningarlíf. Síðast en ekki síst er horft til þess að öflug heilbrigðis- og félagsþjónusta standi íbúum til boða og að þeir sem komnir eru á efri ár geta búið við innihaldsríkt ævikvöld.

Í framtíðarsýn bæjarstjórnar Akureyrar er gert ráð fyrir sterkri grunngerð allrar þeirrar þjónustu sem nútímasamfélag veitir. Bærinn skal verða ennþá eftirsóttari til búsetu en nú er. Þar lifir og starfar þróttmikið og ánægt fólk sem nýtur allra lífsins gæða. Akureyri á að sameinast sem flestum sveitarfélögum við Eyjafjörð með það að markmiði að þar verði atvinnulíf blómlegt og íbúar ekki færri en 30.000 árið 2020.

