Stjórnsýslunefnd gerir tillögur til bæjarstjórnar um stefnumörkun á sviði stjórnsýslu Akureyrarbæjar. Hún vinnur að því að stjórnsýsla bæjarfélagsins verði á hverjum tíma sem skilvirkust og hagkvæmust. Hún skal vera stefnumótandi nefnd fyrir stjórnkerfi bæjarins og móta reglur um ábyrgðarmörk bæjarfulltrúa og embættismanna. Stjórnsýslunefnd vinnur að því að nýta rafræn upplýsingakerfi og rafræna stjórnsýslu til að stuðla að skilvirkum vinnubrögðum og greiða fyrir aðgangi almennings að upplýsingum og stofnunum bæjarins. Hún beitir sér fyrir fræðslu bæjarfulltrúa og starfsmanna ásamt því að stuðla að faglegum stjórnunarháttum Akureyrarbæjar.
Stjórnsýslunefnd hefur sem sérstök verkefni að samræma reglur og samþykktir um stjórnsýslu bæjarins í heild og um einstakar nefndir og ráð. Hún annast auk þess yfirumsjón með starfsáætlunum og árangursmælingum fyrir stoðdeildir bæjarins svo sem fyrir bókhald, fjárreiður, launavinnslu, skjalastjórn, íbúaskrá, tölvuþjónustu, vefsíðu og þjónustuanddyri.
Í stjórnsýslunefnd sitja kjörtímabilið 2010-2014:
![]() |
![]() |
![]() |
![]() |
![]() |
|
Tryggvi Gunnarsson, formaður |
Hlín Bolladóttir, varaformaður |
Guðmundur Baldvin Guðmundsson |
Ólafur Jónsson |
Andrea Sigrún Hjálmsdóttir |
Varamenn í stjórnsýslunefnd:
Halla Björk Reynisdóttir
Geir Kristinn Aðalsteinsson
Petrea Ósk Sigurðardóttir
Njáll Trausti Friðbertsson
Edward H. Huijbens






