Stjórnkerfið

„Akureyri er alveg mátulega stór og aldrei tafir í umferðinni. Hér er allt til alls en maður nær andanum hér vegna þess að áreitið er hæfilegt. Svo er ekki verra að það tekur aðeins nokkrar mínútur að komast á skíði.” – Ásdís Arnardóttir

Stjórn Akureyrarstofu

Stjórn Akureyrarstofu fer með stjórn menningar-, ferða-, markaðs- og atvinnumála Akureyrarbæjar í umboði bæjarstjórnar. Stjórnin gerir tillögur til bæjarstjórnar um stefnumörkun á þessum sviðum og vinnur að samhæfingu aðgerða. Stjórnin fylgist með því að stofnanir á hennar vegum vinni að settum markmiðum, veiti góða þjónustu og að starfsemi þeirra sé skilvirk og hagkvæm.

Helstu verkefni stjórnar Akureyrarstofu eru:

  • að stuðla að öflugu starfi í málaflokkum sínum og hafa um það samstarf við aðila sem starfa á því sviði, m.a. með gerð sérstakra samstarfssamninga þar sem það á við,
  • að efla og samræma kynningar- og markaðsmál Akureyrarbæjar,
  • að kynna möguleika í atvinnumálum sem bjóðast á Akureyri,
  • að hafa eftirlit með rekstri stofnana Akureyrarbæjar sem starfa á verksviði hennar,
  • að fylgjast með starfsemi stofnana og félaga er njóta styrkja stjórnar Akureyrar­stofu,
  • að líta eftir að til séu sem gleggstar upplýsingar um verkefni stjórnarinnar og að upplýsingar um þá þjónustu sem í boði er séu aðgengilegar á einum stað fyrir bæjarbúa, ferðafólk og aðra,
  • að hafa eftirlit með framkvæmd samninga sem gerðir eru við ráðuneyti um samstarf ríkisins og Akureyrarbæjar um málefni á verksviði stjórnarinnar og
  • að skapa samráðsvettvang milli bæjarfélagsins og hagsmunaaðila á verkefna­sviði stjórnar Akureyrarstofu.

Kjörtímabilið 2010-2014 er stjórn Akureyrarstofu þannig skipuð:

Halla Björk Reynisdóttir

Sigmundur Ófeigsson Jón Hjaltason Sigrún Stefánsdóttir Sóley Björk Stefánsdóttir

Halla Björk Reynisdóttir, formaður

Sigmundur Ófeigsson, varaformaður

Jón Hjaltason

Sigrún Stefánsdóttir

Sóley Björk Stefánsdóttir

Varamenn í stjórn Akureyrarstofu:

Helga Mjöll Oddsdóttir

Aðalbjörg María Ólafsdóttir

Þórarinn Stefánsson

Jóhann Jónsson

Guðrún Þórsdóttir

 

Fundargerðir

Samþykkt um stjórn Akureyrarstofu





Útlit síðu:

Haus_midbaer

Þetta vefsvæði byggir á Eplica