Skólanefnd fer með málefni leikskólanna og grunnskólanna á Akureyri samkvæmt lögum og reglugerðum um þá, sveitarstjórnarlögum og því sem bæjarstjórn felur henni að öðru leyti. Skólanefnd fer einnig með málefni Tónlistarskólans á Akureyri samkvæmt samþykkt bæjarstjórnar. Skólanefnd skal sjá um að öll börn á Akureyri njóti lögboðinnar fræðslu. Í störfum sínum ber skólanefnd einnig að sjá um að allir nemendur á skyldunámsstigi hljóti sem besta aðstöðu og jöfnust tækifæri til náms og að skólinn veiti sérhverjum nemanda fræðslu eftir aldri sínum og þroska og í samræmi við gildandi námsskrá á hverjum tíma.
Skólanefnd hefur yfirumsjón með þeirri þjónustu skólanna og því skólatengdu starfi sem veitt er í skólunum utan skólatíma svo sem skólavistun.
Skólanefnd fylgist með og stuðlar að því að skólum sé tryggður aðgangur að sérfræðiþjónustu í samræmi við gildandi lög og reglugerðir.
Skólanefnd skal sjá um að jafnan sé fyrir hendi fullnægjandi húsnæði og annar útbúnaður.
Skólanefnd gerir tillögu til bæjarstjórnar um skiptingu bæjarins í skólahverfi.
Í skólanefnd sitja kjörtímabilið 2010-2014:
![]() |
![]() |
![]() |
||
|
Sigurveig Bergsteinsdóttir, formaður |
Preben Jón Pétursson, varaformaður |
Sigrún Björk Sigurðardóttir |
Helgi Vilberg |
Logi Már Einarsson |
Varamenn í skólanefnd:
Tryggvi Gunnarsson
Silja Dögg Baldursdóttir
Þorvaldur Sigurðsson
Gísli Aðalsteinsson
Sædís Gunnarsdóttir




