Meginverkefni skipulagsnefndar Akureyrarbæjar eru skipulags- og byggingamál, umhverfisskipulag, lóðaúthlutanir, umferðarmál og landupplýsingakerfi Akureyrar (LUKA). Nefndin hefur hlutverk skipulags- og byggingarnefndar í skilningi 6. gr. skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997 m.s.b., sbr. einnig heimild í 1. mgr. 41. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 45/1998.
Skipulagsnefnd gerir tillögur til bæjarstjórnar um stefnu í skipulags- og byggingarmálum og tekur ákvarðanir á grundvelli skipulags- og byggingarlaga. Hún hefur eftirlit með stefnumörkun og samþykktum í málaflokkum sem undir það heyra, hefur frumkvæði að gerð skipulagstillagna og skipulagsskilmála og gerir tillögur til bæjarstjórnar um skipulagsáætlanir og breytingar á þeim. Nefndin gerir tillögur til bæjarráðs um gjaldtöku vegna gjaldskyldrar starfsemi sem heyrir undir verksvið hennar.
Kjörtímabilið 2010-2014 er skipulagsnefnd þannig skipuð:
![]() |
![]() |
![]() |
![]() |
![]() |
|
Helgi Snæbjarnarson, formaður |
Haraldur Sveinbjörn Helgason, varaformaður |
Eva Reykjalín Elvarsdóttir |
Sigurður Guðmundsson |
Auður Jónasdóttir |
Varamenn í skipulagsnefnd:
Inda Björk Gunnarsdóttir
Vigdís Lovísa Rafnsdóttir
Árni Páll Jóhannsson
Pálmi Gunnarsson
Edward H. Huijbens






