Samfélags- og mannréttindaráð Akureyrarbæjar fjallar um jafnréttismál og önnur mannréttindamál, fjölskyldumál, tómstundamál og forvarnamál í umboði bæjarstjórnar Akureyrar.
Helstu verkefni samfélags- og mannréttindaráðs eru:
- eftirlit með framkvæmd fjölskyldustefnu Akureyrarbæjar,
- jafnréttismál í bæjarfélaginu skv. 10 gr. laga nr. 96/2000 um jafna stöðu og jafnan rétt kvenna og karla og önnur mannréttindamál sem eru ekki sérstaklega falin öðrum,
- eftirlit með framkvæmd laga um ávana- og fíkniefni nr. 65/1974, laga um tóbaksvarnir nr. 6/2002 og áfengislaga nr. 75 frá 1998 að því marki sem lögin leggja skyldur á herðar sveitarfélaga,
- samstarf við Heilsueflingarráð Akureyrar,
- rekstur og starfsemi félags- og tómstundamiðstöðva á vegum bæjarins og samskipti bæjarins við félög sem starfa á þessu sviði,
- starfsemi Menntasmiðjunnar,
- málefni nýbúa.
Kjörtímabilið 2010-2014 er samfélags- og mannréttindaráð þannig skipað:
![]() |
![]() |
![]() |
![]() |
![]() |
|
Hlín Bolladóttir, formaður |
Tryggvi Gunnarsson, varaformaður |
Heimir Haraldsson |
Anna Hildur Guðmundsdóttir |
Guðlaug Kristinsdóttir |
Varamenn i samfélags- og mannréttindaráði:
Brynjar Davíðsson
Inda Björk Gunnarsdóttir
Helga Eymundsdóttir
Jóhann Gunnar Sigmarsson
Regína Helgadóttir
Samþykkt fyrir samfélags- og mannréttindaráð
Eyðublað fyrir umsóknir um styrki frá samfélags- og mannréttindaráði






