Hlutverk íþróttaráðs er að efla íþróttastarf á Akureyri og hafa um það samstarf við félög og aðra aðila sem starfa á því sviði, m.a. með gerð sérstakra samstarfssamninga. Hlutverk þess er jafnframt að leitast við að ná til þeirrar æsku sem sökum áhugaleysis eða af öðrum orsökum gefur sig ekki að heibrigðum viðfangsefnum í tómstundum sínum og að styðja allt það sem eflir siðferðilegan þroska æskufólks.
Íþróttaráð hefur umsjón með rekstri íþróttamannvirkja bæjarins og fylgjist með rekstri íþróttamannvirkja í eigu annarra sem njóta styrks úr bæjarsjóði. Ennfremur fylgist ráðið með starfsemi þeirra félaga er starfa að íþróttamálum og njóta styrks úr bæjarsjóði. Ráðið gerir tillögur til bæjarstjórnar um gjaldskrár, leigu og afnot af íþróttamannvirkjum utan skólatíma og um staðarval og gerð nýrra mannvirkja sem ætluð eru til íþróttastarfs, svo og um meirháttar endurbætur á eldri mannvirkjum.
Í íþróttaráði sitja kjörtímabilið 2010-2014:
![]() |
![]() |
![]() |
![]() |
![]() |
|
Nói Björnsson, formaður |
Silja Dögg Baldursdóttir, varaformaður |
Þorvaldur Sigurðsson |
Erlingur Kristjánsson |
Helena Karlsdóttir |
Varamenn í íþróttaráði:
Geir Kristinn Aðalsteinsson
Þóroddur Hjaltalín
Þuríður Árnadóttir
Sigríður Valdís Bergvinsdóttir
Pétur Maack






