Bæjarráð er kosið til eins árs í senn. Bæjarráð fer ásamt bæjarstjóra með framkvæmda- og fjármálastjórn bæjarins að því leyti sem slík stjórn er ekki öðrum falin. Bæjarráð hefur umsjón með stjórnsýslu bæjarins, undirbúningi árlegrar fjárhags-áætlunar, semur drög að fjárhagsáætlun bæjarsjóðs, stofnana hans og fyrirtækja að fengnum tillögum hlutaðeigandi nefnda og stjórna og leggur þau fyrir bæjarstjórn í samræmi við ákvæði sveitarstjórnarlaga. Þá sér bæjarráð um að ársreikningar bæjarsjóðs séu samdir og þeir ásamt ársreikningum stofnana og fyrirtækja bæjarins lagðir fyrir bæjarstjórn til afgreiðslu. Bæjarráði er heimil fullnaðarafgreiðsla mála sem ekki varða verulega fjárhag bæjarsjóðs eða stofnana hans, enda sé ekki ágreiningur milli bæjarráðsmanna eða við bæjarstjóra um slíka afgreiðslu.
Í bæjarráði sitja kjörtímabilið 2010-2014:
![]() |
![]() |
![]() |
![]() |
![]() |
|
|
Oddur Helgi Halldórsson, formaður |
Geir Kristinn Aðalsteinsson, varaformaður |
Halla Björk Reynisdóttir |
Guðmundur Baldvin Guðmundsson | Ólafur Jónsson | |
Sigurður Guðmundsson (áheyrnarfulltrúi)
Hermann Jón Tómasson (áheyrnarfulltrúi)
Andrea Sigrún Hjálmsdóttir (áheyrnarfulltrúi)
Varamenn í bæjarráði:
Tryggvi Gunnarsson
Hlín Bolladóttir
Inda Björk Gunnarsdóttir
Petrea Ósk Sigurðardóttir
Njáll Trausti Friðbertsson
Anna Hildur Guðmundsdóttir (áheyrnarfulltrúi)
Sigrún Stefánsdóttir (áheyrnarfulltrúi)
Edward H. Huijbens (áheyrnarfulltrúi)






