Umhverfisráð 2001
28.11.2001 - Fundargerð - Umhverfisráð
Umhverfisráð
42. fundur 2001
Árið 2001, miðvikudaginn 28. nóvember kl. 08:00, kom umhverfisráð saman til fundar í fundarsal bæjarstjórnar, Geislagötu 9. Mættir voru undirritaðir nefndarmenn: Guðmundur Jóhannsson, Stefán Jónsson, Oddný Stella Snorradóttir, Þóra Ákadóttir og Guðmundur Ómar Guðmundsson. Einnig voru mættir eftirtaldir starfsmenn Akureyrarbæjar: Bjarni Reykjalín, Finnur Birgisson, Ármann Jóhannesson og Tómas Böðvarsson. Fundarritari var Leifur Þorsteinsson.
Þetta gerðist:
1. Starfs- og verkefnaáætlun umhverfisráðs 2002. Verkefnaáætlun.
Verknúmer: SN010034
040401-0005 Skipulags- og byggingarfulltrúi
Geislagötu 9 600 Akureyri
Sviðsstjóri og deildarstjóri gerðu grein fyrir tillögu dags. 28.11.2001 að starfs- og verkefnaáætlun ráðsins á næsta ári.
Umhverfisráð felur deildarstjóra að ganga frá starfs- og verkefnaáætlun fyrir árið 2002 samkvæmt fyrirliggjandi drögum og umræðum á fundinum.
2. Norðurslóð-háskólasvæði. Deiliskipulag.
Verknúmer: SN010011
010600-0005 Umhverfisráð
Geislagötu 9 600 Akureyri
Tekið fyrir að nýju deiliskipulag háskólasvæðis sem var sent Skipulagsstofnun til yfirferðar hinn 25. október s.l. skv. 3. mgr. 25. gr. skipulags- og byggingarlaga, sbr. bókun umhverfisráðs 2. október. Borist hefur bréf frá stofnuninni dags. 1. nóvember 2001, þar sem hún gerir athugasemd við birtingu auglýsingar um samþykkt deiliskipulagsins í B-deild Stjórnartíðinda, þar sem framlögð gögn geti ekki talist fullnægjandi sem deiliskipulagsáætlun.
Umhverfisráð telur að fyrirliggjandi deiliskipulagstillaga uppfylli þarfir og kröfur bæjarfélagsins varðandi gerð deiliskipulags eftir því sem svæðið gefur tilefni til og sé að öðru leyti í samræmi við grein 5.4 í Skipulagsreglugerð um gerð deiliskipulags. Ráðið felur umhverfisdeild að auglýsa gildistöku deiliskipulagstillögunnar í B-deild Stjórnartíðinda.
Bæjarstjórn 4. desember 2001
3. Dalsbraut. Gatnaframkvæmd.
Verknúmer: SN010035
010600-0005 Umhverfisráð
Geislagötu 9 600 Akureyri
Umræður um þörf á tengingu Dalsbrautar við Borgarbraut.
Umhverfisráð beinir þeim tilmælum til framkvæmdaráðs að framkvæmdir við Dalsbraut milli Borgarbrautar og Þingvallastrætis verði settar á framkvæmdaáætlun 2002.
Bæjarstjórn 4. desember 2001
4. Naustahverfi. Deiliskipulag.
Verknúmer: SN010013
010600-0005 Umhverfisráð
Geislagötu 9 600 Akureyri
Lögð fram til kynningar tillaga frá Kanon-arkitektum að deiliskipulagi 1. áfanga Naustahverfis.
Kynnt. Umhverfisdeild er falið að fullvinna uppdrætti, greinargerð og skipulags- og byggingaskilmála.
5. Viðjulundur. Afsögn á lóð.
Verknúmer: BN010510
Erindi dags. 13.11.2001 þar sem Steingrímur Birgisson, f.h. Hölds ehf., kt. 651174-0239, segja sig frá bensínstöðvarlóð við Viðjulund og óska eftir að fá gatnagerðargjöld vegna lóðarinnar endurgreidd.
Umhverfisráð samþykkir afsögn lóðarinnar og felur fjárreiðudeild að endurgreiða umsækjanda gatnagerðargjöld sem hann hefur þegar greitt í samræmi við gildandi reglur um endurgreiðslu gatnagerðargjalda.
Bæjarstjórn 4. desember 2001
6. Viðjulundur. Lóðarumsókn.
Verknúmer: BN010515
631296-2039 P. Alfreðsson ehf.
Klettagerði 5 600 Akureyri
Erindi dags. 19.10.2001 þar sem Páll Alfreðsson, f.h. P. Alfreðssonar ehf., kt. 631296-2039, Klettagerði 5, sækir um lóð við Viðjulund, milli Furulundar og Þingvallastrætis. Einnig óskar umsækjandi eftir að umhverfisráð geri breytingar á gildandi skipulagi þannig að heimilað verða að reisa íbúðarhúsnæði á svæðinu.
Umhverfisráð samþykkir að veita umsækjanda vilyrði fyrir lóðinni og felur umhverfisdeild að breyta landnotkun á aðalskipulagi úr athafnasvæði í íbúðarsvæði.
Bæjarstjórn 4. desember 2001
7. Sunnuhlíð 12. Breyting inni.
Verknúmer: BN010516
230248-5919 Bernharð Steingrímsson
Tungusíða 2 603 Akureyri
Erindi dags. 22.11.2001 þar sem Bernharð Steingrímsson, kt. 230248-5919, Tungusíðu 2, sækir um breytingar inni í húsi nr. 12 við Sunnuhlíð. Sótt er um að setja upp þrjá klefa fyrir einkasýningar, búningsherbergi og setustofu, í tengslum við veitingastaðinn Setrið, í rými sem nú er verslun merkt 2.9 á aðaluppdráttum.
Meðfylgjandi eru teikningar eftir Berg Steingrímsson, dags. 17.07.2001.
Meðfylgjandi er samþykki meirihluta eigenda Sunnuhlíðar 12.
26.11.2001 móttekin umsögn Heilbrigðiseftirlits Norðurlands eystra.
Umhverfisráð heimilar ekki þá breyttu notkun á húsnæðinu sem sótt er um.
Bæjarstjórn 4. desember 2001
8. Steinatröð 1. Skipulagsbreyting.
Verknúmer: BN010349
281168-3719 Aðalsteinn Ómar Þórisson
Stórholt 6 603 Akureyri
090266-5789 Kolbrún Sigurgeirsdóttir
Stórholt 6 603 Akureyri
Erindi dags. 31.07.2001 þar sem Aðalsteinn Ómar Þórisson, kt. 281168-3719 og Kolbrún Sigurgeirsdóttir, kt. 090266-5789, Stórholti 6, sækja um skipulagsbreytingu á lóðinni nr. 1 við Steinatröð þ.e. að stækka lóðina og breyta staðsetningu byggingarreits bílgeymslu, var sent í grenndarkynningu þann 23. október 2001 og lauk henni 20. nóvember s.l. Ekki bárust athugasemdir.
Umhverfisráð samþykkir erindið, þar sem engar athugasemdir bárust við grenndarkynningunni.
Bæjarstjórn 4. desember 2001
9. Giljahverfi 4. Leiksvæði.
Verknúmer: SN010007
040401-0005 Skipulags- og byggingarfulltrúi
Geislagötu 9 600 Akureyri
Skipulags- og byggingafulltrúi lagði fram tillögu um að svæði sunnan Vættagils verði tekið undir leiksvæði með leiktækjum. Tillagan fór í grenndarkynningu þann 23. október 2001 og lauk henni 20. nóvember sl. Fram kom athugasemd frá Ragnhildi Jónsdóttur f.h. íbúa Vættagils 26. Athugasemdirnar eru í tveimur liðum:
1. Að fyrirhugað leiksvæði sé staðsett nálægt djúpum gilskorningi og læk, sem getur orðið það vatnsmikill að börnum stafi hætta af.
2. Leikvöllurinn fyrirhugaði sé ekki vel sýnilegur frá Vættagili sökum jarðvegskants sunnan Vættagils 32.
Bréfritari telur að fyrirhugaður leikvöllur væri mun betur staðsettur nær botnlanga Vættagils en þar myndi hann nýtast mun betur og væri einnig öruggari kostur.
Umhverfisráð samþykkir að gert verði leiksvæði við enda Vættagils í samræmi við fyrirliggjandi tillögu, en felur skipulags- og byggingafulltrúa að gera ráðstafanir til þess að koma til móts við athugasemdir bréfritara og ræða við lóðarhafa lóðarinnar Vættagil 26-32 um hugsanlegar breytingar á lóðarskiptingu, lóðarmörkum og ósamþykktum framkvæmdum utan lóðarmarka, sem bréfritari vísar til.
Bæjarstjórn 4. desember 2001
10. Valagil 2 - 8. Tillöguteikningar.
Verknúmer: BN010509
060959-3829 Hafsteinn Sveinsson
Vallholt 1 690 Vopnafjörður
Erindi dags. 19.11.2001 þar sem Haraldur Árnason, f.h. Hafsteins Sveinssonar, kt. 060959-3829, Vallholti 1, 690 Vopnafjörður, sækir um lóðarstækkun til suðurs um 4 metra að stíg milli Valagils og Vesturgils og um leyfi til að breyta 4 einbýlishúsalóðum í 3 parhúsalóðir. Lóðirnar hafa nú númerin 2, 4, 6 og 8 en fengju númerin 2-4, 6-8, 10-12.
Umhverfisráð samþykkir erindið.
Bæjarstjórn 4. desember 2001
11. Valagil 23(25). Númerabreyting á lóð.
Verknúmer: BN010513
010600-0005 Umhverfisráð
Geislagötu 9 600 Akureyri
Skipulags- og byggingafulltrúi leggur til að lóð nr. 23 við Valagil verði skráð nr. 25 við Valagil, vegna skipulagsbreytinga. Lóðarhafi er Gunnar Garðarsson, kt. 180364-4989, Valsárskóla, 601 Akureyri,
Umhverfisráð samþykkir erindið.
Bæjarstjórn 4. desember 2001
12. Valagil 16(20). Númerabreyting á lóð.
Verknúmer: BN010514
010600-0005 Umhverfisráð
Geislagötu 9 600 Akureyri
Skipulags- og byggingafulltrúi leggur til að lóð nr. 16 við Valagil verði skráð nr. 20 við Valagil, vegna skipulagsbreytinga. Lóðarhafar eru Una Kristjana Jónatansdóttir, kt. 081069-3529 og Karl Matthías Valtýsson, kt. 120863-4289, Stórutjarnarskóla, 641 Húsavík.
Umhverfisráð samþykkir erindið.
Bæjarstjórn 4. desember 2001
13. Búðargil. S kipulag orlofshúsabyggðar.
(Verknúmer: SN000042)
311269-4459 Njáll Trausti Friðbertsson
Ásvegi 20 600 Akureyri
431085-0709 Arkitektar Gunnar og Reynir sf
Laugavegi 18a 101 Reykjavík
Erindi dags. 27.11.2001 þar sem Njáll Trausti Friðbertsson, kt. 311269-4459, f.h. Sæluhúsa Akureyrar, kt. 591200-3130, óskar eftir fresti til að skila inn deiliskipulagstillögu, fyrir Búðargil til 15.01.2002. Tillögurnar eru komnar langt í vinnslu.
Umhverfisráð samþykkir erindið.
Bæjarstjórn 4. desember 2001
14. Fossagil 5. Lóðarumsókn.
Verknúmer: BN010500
151057-2099 Ásgrímur Magnússon
Stapasíða 14 603 Akureyri
Erindi dags. 07.11.2001 þar sem Ásgrímur Magnússon, kt. 151057-2099, Stapasíðu 14, Akureyri, sækir um lóðina nr. 5 við Fossagil.
Umhverfisráð samþykkir að veita umsækjanda lóð nr. 5 við Fossagil.
Byggingarskilmálar gilda.
Óendurkræft staðfestingargjald, vegna lóðarveitingar, að upphæð kr. 10.000.- greiðist hjá bæjargjaldkera innan 15 daga frá staðfestingu í bæjarstjórn.
Frá staðfestingu í bæjarstjórn er frestur til að skila inn teikningum 9 mánuðir, en 15 mánuðir til að hefja framkvæmdir.
Verði frestir þessir ekki virtir fellur lóðin aftur til bæjarins án frekari tilkynningar.
Vanda skal til allrar hönnunar og þess gætt að fyrirhuguð bygging falli vel að landi. Umhverfisráð tekur fram að það mun ekki fallast á að breyta skipulagi á hinni úthlutuðu lóð þrátt fyrir heimildarákvæði í deiliskipulagi.
Bæjarstjórn 4. desember 2001
15. Fossagil 7. Lóðarumsókn.
Verknúmer: BN010501
151057-2099 Ásgrímur Magnússon
Stapasíða 14 603 Akureyri
Erindi dags. 07.11.2001 þar sem Ásgrímur Magnússon, kt. 151057-2099, Stapasíðu 14, Akureyri, sækir um lóðina nr. 7 við Fossagil.
Umhverfisráð samþykkir að veita umsækjanda lóð nr. 7 við Fossagil.
Byggingarskilmálar gilda.
Óendurkræft staðfestingargjald, vegna lóðarveitingar, að upphæð kr. 10.000.- greiðist hjá bæjargjaldkera innan 15 daga frá staðfestingu í bæjarstjórn.
Frá staðfestingu í bæjarstjórn er frestur til að skila inn teikningum 9 mánuðir, en 15 mánuðir til að hefja framkvæmdir.
Verði frestir þessir ekki virtir fellur lóðin aftur til bæjarins án frekari tilkynningar.
Vanda skal til allrar hönnunar og þess gætt að fyrirhuguð bygging falli vel að landi. Umhverfisráð tekur fram að það mun ekki fallast á að breyta skipulagi á hinni úthlutuðu lóð þrátt fyrir heimildarákvæði í deiliskipulagi.
Bæjarstjórn 4. desember 2001
16. Klettaborg 25. Byggingarstjóri.
Verknúmer: BN010459
281247-3529 Þorsteinn Jökull Vilhjálmsson
Flögusíða 1 603 Akureyri
Erindi dags. 18.10.2001 þar sem Þorsteinn Jökull Vilhjálmsson, kt. 281247-3529, Flögusíðu 1, sækir um að vera byggingarstjóri við húsið nr. 25 við Klettaborg.
Skipulags- og byggingafulltrúi hefur samþykkt erindið þann 19.11.2001 þar sem umsækjandi uppfyllir skilyrði reglugerðar.
Bæjarstjórn 4. desember 2001
17. Klettaborg 25. Byggingarleyfi.
Verknúmer: BN010450
030855-7799 Haukur Tryggvason
Háagerði 3 600 Akureyri
Erindi dags. 16.10.2001 þar sem Fanney Hauksdóttir, f.h. Hauks Tryggvasonar, kt. 030855-7799, Háagerði 3, sækir um byggingarleyfi fyrir húsið nr. 25 við Klettaborg. Meðfylgjandi eru teikningar eftir Fanneyju Hauksdóttur dags. í maí 2001.
Skipulags- og byggingafulltrúi hefur samþykkt erindið þann 19.11.2001 þar sem það brýtur ekki í bága við reglugerð.
Bæjarstjórn 4. desember 2001
18. Bæjarsíða 1. Sólskáli.
(Verknúmer: BN010411 01)
310343-2779 Bjarnhéðinn Gíslason
Bæjarsíða 1 603 Akureyri
Erindi dags. 21.09.2001, leiðrétt gögn móttekin 16.11.2001, þar sem Bjarnhéðinn Gíslason, kt. 310343-2779, og Heiðdís Haraldsdóttir, kt. 190942-2019, Bæjarsíðu 1, sækja um leyfi til að byggja sólskála við húsið nr. 1 við Bæjarsíðu. Meðfylgjandi eru teikningar dags. 18.09.2001 eftir Hauk Haraldsson.
Skipulags- og byggingafulltrúi hefur samþykkt erindið þann 19.11.2001 þar sem það brýtur ekki í bága við reglugerð.
Bæjarstjórn 4. desember 2001
19. Bæjarsíða 1. Byggingarstjóri.
Verknúmer: BN010425
010742-3909 Ólafur Ólafsson
Rauðamýri 17 600 Akureyri
Erindi dags. 04.10.2001 þar sem Ólafur Ólafsson, kt. 010742-3909, Rauðamýri 17, sækir um leyfi til að vera byggingarstjóri við byggingu sólskála við hús nr. 1 við Bæjarsíðu.
Skipulags- og byggingafulltrúi hefur samþykkt erindið þann 19.11.2001 þar sem umsækjandi uppfyllir skilyrði reglugerðar.
Bæjarstjórn 4. desember 2001
20. Spónsgerði 2. Stækkun bílgeymslu.
(Verknúmer: BN010330)
030563-4259 Valdimar Björn Davíðsson
Spónsgerði 2 600 Akureyri
Erindi dags. 24.07.2001 þar sem Björn Jóhannsson, f.h. Valdimars Davíðssonar, kt. 030563-4259, Spónsgerði 2, sækir um stækkun og gluggabreytingar á bílgeymslu á lóðinni nr. 2 við Spónsgerði. Meðfylgjandi eru teikningar eftir Björn Jóhannsson, dags. 10.10.2001.
Leiðrétt gögn móttekin 09.11.2001.
Skipulags- og byggingafulltrúi hefur samþykkt erindið þann 19.11.2001 þar sem það brýtur ekki í bága við reglugerð.
Bæjarstjórn 4. desember 2001
21. Óseyri 6c. Eignaskipting.
Verknúmer: BN010457
601186-1449 Raflampar ehf
Óseyri 6 603 Akureyri
Erindi dags. 16.10.2001 þar sem Þröstur Sigurðsson, f.h. Raflampa ehf., kt. 601186-1449, sækir um að eign Raflampa í Óseyri 6c verði skipt í tvær eignir, merktar 0105 og 0106. Meðfylgjandi eru teikningar eftir Þröst Sigurðsson dags. 26.09.01.
Aðrir eigendur Óseyri 6c hafa samþykkt breytinguna með undirskrift á umsóknina.
30.10.2001 móttekin umsögn frá Vinnueftirliti ríkisins.
Móttekin leiðrétt gögn 31.10.2001.
Skipulags- og byggingafulltrúi hefur samþykkt erindið þann 15.11.2001 þar sem það brýtur ekkií bága við reglugerð.
Bæjarstjórn 4. desember 2001
22. Dalsbraut - Lundarskóli. Útlitsbreyting.
Verknúmer: BN010480
710501-2380 Fasteignir Akureyrarbæjar
Geislagötu 9, 4. hæð 600 Akureyri
Erindi dags. 31.10.2001 þar sem Anton Örn Brynjarsson, f.h. Fasteigna Akureyrarbæjar, kt. 710501-2380, sækir um breytingu á neyðarútgangi úr sal í Lundarskóla. Meðfylgjandi eru teikningar eftir Fanneyju Hauksdóttur dags. í okt. 1998, breytingar dags. 27.09.01.
Skipulags- og byggingafulltrúi hefur samþykkt erindið þann 15.11.2001 þar sem það brýtur ekki í bága við reglugerð.
Bent er á að mikil snjósöfnun er á milli álmanna þannig að gera þarf ráðstafanir til að nýja útgönguleiðin sé ávallt fær.
Bæjarstjórn 4. desember 2001
23. Bugðusíða 3. Byggingarstjóri.
(Verknúmer: BN010507)
210841-7099 Einar Jóhannsson
Grænamýri 16 600 Akureyri
Erindi dags. 1. ágúst 2001 móttekið 15.11.2001 þar sem Einar Jóhannsson, kt. 210841-7099, sækir um að vera byggingarstjóri yfir breytingum við leikskólann Krógaból, Bugðusíðu 3.
Skipulags- og byggingafulltrúi hefur samþykkt erindið þann 19.11.2001 þar sem umsækjandi uppfyllir skilyrði reglugerðar.
Bæjarstjórn 4. desember 2001
24. Hlíðarfjall - Lyftuhús, viðbygging. Byggingarstjóri.
Verknúmer: BN010504
080264-3729 Daníel Þór Hilmarsson
Brimnesbraut 31 620 Dalvík
Erindi dags. 13.11.2001 þar sem Daníel Þór Hilmarsson, kt. 080264-3729, Brimnesbraut 31, 620 Dalvík, sækir um að verða byggingarstjóri yfir viðbyggingu við neðra lyftuhús í Hlíðarfjalli.
Skipulags- og byggingafulltrúi hefur samþykkt erindið þann 16.11.2001 þar sem umsækjandi uppfyllir skilyrði reglugerðar.
Bæjarstjórn 4. desember 2001
25. Hamragerði 23. Niðurrif.
(Verknúmer: BN010497 02)
140153-3629 Árni Árnason
Hamragerði 23 600 Akureyri
011253-2889 Bergljót Jónasdóttir
Hamragerði 23 600 Akureyri
Erindi dags. 06.11.2001 þar sem Árni Árnason, kt. 140153-3629 og Bergljót Jónasdóttir, kt. 011253-2889, sækja um leyfi til að fjarlægja viðbyggingu við hús nr. 23 við Hamragerði.
Skipulags- og byggingafulltrúi hefur samþykkt erindið þann 16.11.2001 þar sem það brýtur ekki í bága við reglugerð. Tilkynna skal til byggingareftirlits þegar niðurrifi er lokið.
Bæjarstjórn 4. desember 2001
26. Austurbyggð 17. Byggingarstjóri.
Verknúmer: BN010490
180550-2409 Jóhann Ólafur Þórðarson
Melasíðu 2e 603 Akureyri
Erindi dags. 26.10.2001 þar sem Jóhann Ólafur Þórðarson, kt. 180550-2409, Melasíðu 2e, sækir um að verða byggingarstjóri yfir breytingum í húsi nr. 17 við Austurbyggð, B og C gangi.
Skipulags- og byggingafulltrúi hefur samþykkt erindið þann 16.11.2001 þar sem umsækjandi uppfyllir skilyrði reglugerðar.
27. Vesturgil 14 - 16. Byggingarstjóri.
Verknúmer: BN010435
250459-3949 Elías Þór Höskuldsson
Öldugata 15 621 Dalvík
Erindi dags. 03.10.2001 móttekið 11.10.2001 þar sem Elías Þór Höskuldsson, kt. 250459-3949, Öldugötu 15, 620 Dalvík, sækir um leyfi til að vera byggingarstjóri við nýbygginguna nr. 14 - 16 við Vesturgil.
Skipulags- og byggingafulltrúi hefur samþykkt erindið þann 16.11.2001 þar sem umsækjandi uppfyllir skilyrði reglugerðar.
Bæjarstjórn 4. desember 2001
28. Strandgata 49. Áfengisveitingar.
Verknúmer: BN010476
520698-2059 Bitra ehf
Háagerði 3 600 Akureyri
Bæjarráð óskar umsagnar byggingafulltrúa á umsókn Hauks Tryggvasonar, kt. 030855-7799 um endurnýjun á leyfi til áfengisveitinga á veitinga- og skemmtistaðnum Við Pollinn, Strandgötu 49.
Skipulags- og byggingafulltrúi hefur ekkert við erindið að athuga fyrir sitt leyti.
29. Lögbergsgata 3. Breyting úti.
(Verknúmer: BN010462)
280962-3099 Guðrún Birna Jóhannsdóttir
Ásholt 5 621 Dalvík
310355-4969 Guðmundur Örn Njálsson
Ásholt 5 621 Dalvík
Erindi dags. 22.10.2001 þar sem Guðrún B. Jóhannsdóttir, kt. 280962-3099 og Guðmundur Örn Njálsson, kt. 310355-4969, Lögbergsgötu 3, sækja um leyfi til að breyta gluggapóstum á húsi nr. 3 við Lögbergsgötu skv meðfylgjandi teikningu dags. br. 22.10.2001.
Skipulags- og byggingafulltrúi hefur samþykkt erindið þann 20.11.2001 þar sem það brýtur ekki í bága við reglugerð.
Bæjarstjórn 4. desember 2001
30. Austurbyggð 13. Byggingarstjóri.
Verknúmer: BN010468
260344-3159 Sveinn Heiðar Jónsson
Bæjarsíða 5 603 Akureyri
Erindi dags. 23.10.2001 og móttekin gögn 21.11.2001 þar sem Sveinn Heiðar Jónsson, kt. 260344-3159, Bæjarsíðu 5, sækir um leyfi til að vera byggingarstjóri við framkvæmdir á húsi nr. 13 við Austurbyggð, vegna skiptingar á húsinu.
Skipulags- og byggingafulltrúi hefur samþykkt erindið þann 21.11.2001 þar sem umsækjandi uppfyllir skilyrði reglugerðar.
Bæjarstjórn 4. desember 2001

