Umhverfisráð 2000
Umhverfisráð
6. fundur 2000
Árið 2000, miðvikudaginn 30. ágúst kl. 08:00, kom umhverfisráð saman til fundar í fundarsal bæjarstjórnar, Geislagötu 9. Mættir voru undirritaðir nefndarmenn: Guðmundur Ómar Guðmundsson, Knútur Karlsson, Oddný Stella Snorradóttir, Stefán Jónsson og Vilborg Gunnarsdóttir. Einnig voru mættir eftirtaldir starfsmenn Akureyrarbæjar: Árni Ólafsson, Jón Geir Ágústsson, Leifur Kristján Þorsteinsson, Tómas Böðvarsson, Ármann Jóhannesson og Bjarni Reykjalín. Fundarritari var Hjalti Jóhannesson.
Þetta gerðist:
1. Umhverfisráð. , Kynning á starfsemi.
(Verknúmer: SN000021)
410169-6229 Akureyrarkaupstaður
Geislagötu 9 600 Akureyri
Árni Ólafsson, skipulagsstjóri gerði grein fyrir helstu verkefnum sem eru fyrirliggjandi hjá Akureyrarbæ á sviði skipulagsmála, svo og vinnuaðferðum og viðhorfum til bæjarskipulags og umhverfismála.
Hann lagði fram yfirlit yfir skipulagsverkefni hjá Akureyrarbæ dags. 28.8.2000 og lista og uppdrátt yfir möguleika á þéttingu byggðar á Akureyri dags. í ágúst 2000.
Umræður og fyrirspurnir.

