Stjórnkerfið

„Akureyri er alveg mátulega stór og aldrei tafir í umferðinni. Hér er allt til alls en maður nær andanum hér vegna þess að áreitið er hæfilegt. Svo er ekki verra að það tekur aðeins nokkrar mínútur að komast á skíði.” – Ásdís Arnardóttir


Umhverfisráð 2000

30.06.2000 - Fundargerð - Umhverfisráð

Umhverfisráð
2. fundur 2000


2. fundur. Árið 2000, föstudaginn 30. júní kl. 08:00, kom umhverfisráð saman til fundar í fundarsal bæjarstjórnar, Geislagötu 9. Mættir voru undirritaðir nefndarmenn: Vilborg Gunnarsdóttir, Stefán Jónsson, Oddný Stella Snorradóttir, Guðmundur Ómar Guðmundsson og Knútur Karlsson. Einnig voru mættir eftirtaldir starfsmenn Akureyrarbæjar: Árni Ólafsson og Jón Geir Ágústsson.


Þetta gerðist:


1. Hesthúsahverfi, Breiðholt , deiliskipulag.
(Verknúmer: SN960040)

410169-6229 Akureyrarkaupstaður
Geislagötu 9 600 Akureyri

Aldís M. Norðfjörð, arkitekt á Umhverfisdeild, lagði fram og kynnti tillögu að deiliskipulagi hesthúsahverfis í Breiðholti. Tillagan var unnin af Helgu Aðalgeirsdóttur, landslagsarkitekt, en gengið frá henni á Skipulagsdeild þar sem Helga hefur hætt rekstri vinnustofu sinnar.
Umræður.


2. Hesthúsahverfi, Hlíðarholt, , deiliskipulag.
(Verknúmer: SN960041)

410169-6229 Akureyrarkaupstaður
Geislagötu 9 600 Akureyri

Aldís M. Norðfjörð, arkitekt á Umhverfisdeild, lagði fram og kynnti tillögu að deiliskipulagi hesthúsahverfis í Hlíðarholti. Tillagan var upphaflega unnin af Helgu Aðalgeirsdóttur, landslagsarkitekt. Helga hefur hætt rekstri vinnustofu sinnar þannig að Skipulagsdeild sá um lokafrágang tillögunnar. Á lokastigi verksins var innra gatnakerfi hverfisins og skipulagi nýbyggingarsvæða breytt þótt megindrættir fyrri hugmyndar væru nýttir áfram.
Umræður. Umhverfisráð felur starfsmönnum að boða til kynningarfundar um deiliskipulagstillögurnar í samráði við Hestamannafélagið Létti.


3. Krossanes, , endurskoðun deiliskipulags.
(Verknúmer: SN990067)

410169-6229 Akureyrarkaupstaður
Geislagötu 9 600 Akureyri

Tillaga að deiliskipulagi hafnarsvæðis í Krossanesi var auglýst 5. maí s.l. og var athugasemdafrestur til 16. júní. Athugasemdir bárust frá 7 aðilum.
Umhverfisráð leggur til að tillaga að deiliskipulagi hafnarsvæðis í Krossanesi, svo breytt, verði samþykkt og sent Skipulagsstofnun til yfirferðar.


4. Tryggvabraut 22, , fyrirspurn um breytingu í íbúðarhúsnæði.
(Verknúmer: SN000023)

060245-2669 Róbert Þ Bender
Gíbraltar

Borist hefur bréf dags. 19. maí 2000 frá Tacsis, lögfræðilegri fyrirtækis- og rekstarráðgjöf, undirritað að Róbert Þ. Bender þar sem óskað er umsagnar um hugmyndir að breytingu á 3. hæð Tryggvabrautar 22 í fimm til sex íbúðir.
Húsið er á svæði sem skilgreint er í aðalskipulagi Akureyrar 1998 - 2018 sem athafnasvæði. Um slík svæði segir þar: "Þar er hvers kyns atvinnustarfsemi sem ekki hefur verulega truflandi áhrif á umhverfi sitt. Þar má gera ráð fyrir léttum iðnaði, vörugeymslum, verkstæðum, verslun, skrifstofum, þjónustufyrirtækjum og stofnunum. Íbúðir eru ekki heimilar nema húsvarðaríbúðir í undantekningartilfellum". Umhverfisráð telur umhverfi hússins ekki gefa tilefni til aðalskipulagsbreytingar vegna umsóknarinnar.
Erindinu er því synjað.


5. Strandgata 19b, , umsókn um lóðarstækkun.
(Verknúmer: SN000016)

021258-4159 Gunnar Tryggvason
Strandgata 19b 600 Akureyri

Tekið fyrir að nýju erindi frá Gunnari Tryggvasyni, Standgötu 19b, dags. 04.05.2000 þar sem hann sækir um lóðarstækkun um 2 m til austurs umfram það sem gert er ráð fyrir í deiliskipulagi suðurhluta Oddeyrar. Erindið var á dagskrá umhverfisráðs 16.06. s.l.
Umhverfisráð getur ekki fallist á tvegga metra skerðingu nýbyggingarlóðar við Lundargötu þar sem skerðingin hefði afgerandi áhrif á gæði lóðarinnar. Ráðið getur þó fallist á að færa lóðamörk Strandgötu 19b 1 m til austurs.
Umhverfisráð beinir því til bæjarráðs að falast eftir kaupum á suðurhluta hússins Lundargötu 3 svo hægt verði að þétta byggð á suðurhluta Oddeyrar í samræmi við starfsáætlun ársins 2000.


6. Hafnarstræti 2 , göngustígur milli Búðarfjöru og Duggufjöru.
(Verknúmer: SN990091)

310353-5669 Jón Einar Haraldsson
Hafnarstræti 2 600 Akureyri

Grenndarkynning:
Tillaga um gerð göngustígs á austurjaðri lóðarinnar Hafnarstræti 2 milli Duggufjöru og Búðarfjöru sbr. bókun nefndarinnar 14.01.2000 var kynnt nágranna með grenndarkynningu 29. maí s.l. Athugasemdafrestur var til 26. júní. Engin athugasemd barst.
Lagt fram.


7. Norðurgata 39b. , Umsókn um bílastæði.
(Verknúmer: BN000156)

290940-7969 Anna Lilly Daníelsdóttir
Norðurgata 39b 600 Akureyri

Grenndarkynning:
Erindi dags. 09.05.2000 þar sem Anna Lillý Daníelsdóttir kt: 290940-7969 Norðurgötu 39b sækir um leyfi til að gera bílastæði á lóðinni Norðurgötu 39b og spyrst fyrir um hvort leyfi fengist til að byggja bílgeymslu samkvæmt meðfylgjandi teikningum dags. 05.05.2000 eftir Árna Gunnar Kristjánsson, Helgamagrastræti 22.
Erindið var kynnt nágrönnum með grenndarkynningu 23. maí s.l. Athugasemdafrestur var til 20. júní. Engin athugasemd barst.
Lagt fram.


8. Miðteigur 2. , Umsókn um byggingarleyfi.
Verknúmer: BN000118

110154-3649 Jóhannes Ottósson
Helgamagrastræti 40 600 Akureyri
140360-2609 Margrét P Sveinbjörnsdóttir
Helgamagrastræti 40 600 Akureyri

Grenndarkynning:
Erindi dags. 18.04.2000 þar sem Jóhannes Ottósson, kt: 110154-3649 og Margrét Sveinbjörnsdóttir, kt: 140360-2609, Helgamagrastræti 40 sækja um byggingarleyfi fyrir einbýlishúsi á lóðinni nr. 2 við Miðteig samkvæmt meðfylgjandi teikningum dags. apríl 2000 eftir Hauk Haraldsson, Kaupangi v/Mýrarveg. Einnig er sótt um leyfi til að fara út fyrir byggingarreit með sólskála eins og sýnt er á teikningu. Skipulagsdeild sendi út grenndarkynningu 31.05.2000 og rann frestur til að gera athugasemdir út 28.06.2000. Eitt svar barst frá Ásgeiri Vilhelm Bragasyni og Önnu Lilju Björnsdóttur þar sem þau taka fram að þau geri ekki athugasemdir við bygginguna.
Frávik frá byggingarreit samþykkt.


9. Mosateigur 10. , Umsókn um byggingaleyfi.
Verknúmer: BN000110

070549-2719 Jakob Hilmar Antonsson
Bakkahlíð 25 603 Akureyri

Grenndarkynning:
Erindi dags. 12.04.2000 þar sem Fanney Hauksdóttir fh. Jakobs Hilmars Antonssonar, kt: 070549-2719, Bakkahlíð 25 sækir um byggingarleyfi fyrir einbýlishúsi á lóðinni nr. 10 við Mosateig samkvæmt meðfylgjandi teikningum dags. í apríl 2000 eftir Fanneyju Hauksdóttur, Kaupangi v/Mýrarveg. Jafnframt er sótt um leyfi til að bílskúr fari út fyrir byggingarreit til vesturs.
Skipulagsdeild sendi erindið í grenndarkynningu 30.05.2000 og rann frestur til að gera athugasemdir út 27.06.2000.
Bréf dags. 19.06.2000 undirritað af öllum nágrönnum sem fengu grenndarkynninguna senda, þ.e. Magnúsi Þorsteinssyni og Roxanne Morales, Hringteigi 13, Gunnari Karlssyni og Björgu Rafnsdóttur, Hringteigi 15, Pétri Ásgeirssyni, Hringteigi 17 og Friðjóni H. Halldórssyni, Mosateigi 8. Bréfritarar telja þá breytingu sem gefur tilefni til grenndarkynningarinnar, þ.e. að bílskúr fari út fyrir byggingarreit við fyrstu sýn ekki verulega. Hins vegar gera bréfritarar athugasemdir við hæð hússins sem þeir telja óhóflega miðað við að gert er ráð fyrir einnar hæðar húsi á lóðinni. Gerðar eru athugasemdir við að byggingar- og skipulagsskilmálar séu ekki fullnægjandi með tilliti til hagsmuna lóðarhafa/fasteignaeigenda, þ.e. nágranna Mosateigs 10, þar sem ákvæði vanti í skilmálana s.s. um hámarkshæð bygginga, þakform, mænishæð og -stefnu.
Með hliðsjón af þessu geta bréfritarar ekki fallist á þau frávik frá skipulagsskilmálum sem óskað er eftir og gera jafnframt þá kröfu að fram fari sjálfstæð grenndarkynning vegna þeirra frávika sem gerðar eru um hæð hússins. Þessum frávikum mótmæla bréfritarar og munu ítreka mótmæli verði orðið við kröfu þeirra um endurskoðun á málinu með nýrri eða endurtekinni grenndarkynningu. Að lokum taka bréfritarar fram að þeir voni að tekið verði tillit til röksemda þeirra, en verði það ekki gert áskilji þeir sér rétt til að krefjast bóta úr hendi skipulagsyfirvalda.
Umhverfisráð tók allar athugasemdir bréfritara til efnislegrar umræðu og telur ekki ástæðu til annarrar grenndarkynningar eins og óskað er eftir.
Mesta hæð umrædds húss er ekki meiri en reikna má með miðað við hefðbundið húsform einnar hæðar húss. Hverfið var skipulagt með tiltölulega stórum lóðum og opnum skilmálum til þess að gefa kost á fjölbreytileika í útliti og formi húsa. Umhverfisráð telur ekki annmarka á því að veita byggingarleyfi fyrir húsinu.


10. Fjölskyldustefna Akureyrarbæjar. ,
(Verknúmer: SN000022)

410169-6229 Akureyrarkaupstaður
Geislagötu 9 600 Akureyri

Erindi frá félagsmálaráði dags.06.06.2000 þar sem þess er óskað að nefndir bæjarins komi að vinnu við mótun fjölskyldustefnu, hver fyrir sinn málaflokk. Lagt er til að nefndir tilnefni tengilið við sviðsstjóra félagssviðs vegna þessarar vinnu svo að samræma megi útlitsform tillagna. Óskað er eftir að ábendingum nefndarinnar fyrir 25. september næstkomandi.
Lagt fram.


11. Síðubraut. , Lóðarumsókn.
Verknúmer: BN000235

651174-0239 Höldur ehf
Tryggvabraut 12 600 Akureyri

Erindi dags. 09.06.2000 þar sem Vilhelm Ágústsson f.h. Höldurs ehf. sækir um lóðina vestan Sjafnar verksmiðjunnar fyrir byggingu húss sem myndi geyma bíla, kerrur og þ.h.
Frestað.


12. Búðargil orlofshús. , Umsókn um lóð.
Verknúmer: BN000083

311269-4459 Njáll Trausti Friðbertsson
Ásvegi 20 600 Akureyri

Framkvæmdaráð samþykkti eftirfarandi bókun 26. júní s.l.:
Lagt er til að umhverfisráð úthluti svæði fyrir orlofshúsabyggð við ofanvert Búðargil samkvæmt aðalskipulagi. Framkvæmdaaðili sem fær svæðinu úthlutað láti vinna tillögu að deiliskipulagi þess í samráði við umhverfisráð sem sér um auglýsingu skipulagsins. Líklegt er að aðkoma verði bæði frá Lækjargötu og Þórunnarstræti og ætti því að vera mögulegt að sá hluti sem hefði aðkomu frá Þórunnarstræti gæti orðið byggingarhæfur með tiltölulega stuttum fyrirvara.
Umhverfisráð leggur til að svæði fyrir orlofshúsabyggð, sem afmarkað er í aðalskipulagi Akureyrar 1998- 2018 verði auglýst laust til umsóknar. Einungis hluti svæðisins verði þó tekinn í notkun í fyrsta áfanga. Væntanlegur lóðarhafi láti vinna deiliskipulagstillögu í samráði við umhverfisráð sem sér um auglýsingu tillögunnar. Umhverfisráð felur umhverfisdeild og tæknideild að afmarka svæðið þannig að auglýsa megi það laust til umsóknar sem fyrst.


13. Krossanesbraut - Krossanes. , Lóðarumsókn.
Verknúmer: BN000242

660695-2069 Olíudreifing ehf
Gelgjutanga 104 Reykjavík

Erindi dags. þar sem Friðrik Ólafsson fh. Olíudreifingar ehf., kt: 660695-2069, Gelgjutanga, 104 Reykjavík, sækir um lóð fyrir olíubirgðastöð í Krossanesi, neðan við núverandi birgðastöð Olíudreifingar efh. og Skeljungs hf., á nýgerðri uppfyllingu.
Sjá bókun við 3. lið í fyrri hluta fundargerðar umhverfisráðs.


14. Urðargil 24. , Umsókn um lóð.
Verknúmer: BN000252

120169-5139 Björk Sigurðardóttir
Skarðshlíð 27e 603 Akureyri
230267-3329 Heimir Guðlaugsson
Skarðshlíð 27e 603 Akureyri

Erindi dags. 20.06.2000 þar sem Björk Sigurðardóttir, kt: 120169-5139, Skarðshlíð 27e, sækir um lóðina Urðargil 24 til að byggja á einbýlishús.
Samþykkt.

Óendurkræft staðfestingargjald, vegna lóðarveitingar, að upphæð kr. 30.000 greiðist innan 15 daga frá staðfestingu í bæjarstjórn.


15. Urðargil 30-32. , Framlenging á byggingarfresti.
Verknúmer: BN000244

621092-2359 Eyco ehf
Vættagili 2 603 Akureyri

Erindi dags. 15.06.2000 þar sem Haraldur Árnason f.h. Eyco ehf., Vættagili 2, sækir um framlengingu á byggingarfresti og skilatíma teikninga á lóðinni nr. 30-32 við Urðargil. Óskað er eftir fresti til 1. sept. 2000.
Rökstuðning vantar, frestað.


16. Urðargil 34-36. , Framlenging á byggingarfresti.
Verknúmer: BN000250

621092-2359 Eyco ehf
Vættagili 2 603 Akureyri

Erindi dags. 15.06.2000 þar sem Haraldur Árnason f.h. Eyco ehf., Vættagili 2, sækir um framlengingu á byggingarfresti og skilatíma teikninga á lóðinni nr. 34-36 við Urðargil. Óskað er eftir fresti til 1. sept. 2000.
Rökstuðning vantar, frestað.


17. Skuggagil. , Framlenging á byggingarfresti.
Verknúmer: BN000245

530289-2069 Fjölnir ehf, trésmiðja
Fjölnisgötu 2b 603 Akureyri

Erindi dags. 15.06.2000 þar sem Haraldur Árnason f.h. Fjölnis ehf. trésmiðju, Fjölnisgötu 2b, sækir um framlengingu á byggingarfresti og skilatíma teikninga á fjölbýlishúsalóð við Skuggagil. Óskað er eftir fresti til 1. ágúst 2000.
Rökstuðning vantar, frestað.


18. Skottugil. , Framlenging á byggingarfresti.
Verknúmer: BN000243

621092-2359 Eyco ehf
Vættagili 2 603 Akureyri

Erindi dags. 15.06.2000 þar sem Haraldur Árnason f.h. Eyco ehf., Vættagili 2, sækir um framlengingu á byggingarfresti og skilatíma teikninga á fjölbýlishúsalóð við Skottugil. Óskað er eftir fresti til 1. sept 2000.
Rökstuðning vantar, frestað.


19. Miðteigur 13. , Framlenging á frestum.
Verknúmer: BN000143

101039-4049 Birgir Ágústsson
Hrafnabjörg 8 600 Akureyri

Bréf ódagsett, móttekið 29.06.2000, undirritað af Birgi Ágústssyni, verkfræðingi, þar sem sótt er um frest til 1. ágúst 2000 til að skila inn teikningum og hefja framkvæmdir við byggingu einbýlishúss á lóðinni. Beiðnin er rökstudd í bréfinu.
Umhverfisráð fellst á rökstuðning bréfritara. Samþykkt.


20. Hafnarstræti 97. , Stöðuúttekt.
(Verknúmer: BN000240)

110498-0005 Byggingafulltrúi Jón Geir Ágústsson
Geislagötu 9 600 Akureyri

Upplýsingar um stöðuúttekt eldvarna í Hafnarstræti 97, sem gerð var 29. og 30.06.2000 af slökkviliðsstjóra og Jóhannesi Ottóssyni, starfsmanni byggingafulltrúa. Tómas Búi Böðvarsson slökkviliðsstjóri kom á fundinn og gerði nefndinni grein fyrir stöðu mála þar sem fram kom meðal annars að viðbrögð við bréfi rituðu 20. júní sem sent var til skráðra eigenda og húsfélags voru mjög lítil.
Hákon Stefánsson bæjarlögmaður sat fundinn undir þessum líð.
Með tilliti til staðsetningar hússins, starfsemi og alvarleika brota samþykkir umhverfisráð að lagðar verði á 250.000 kr. dagsektir frá 15. júlí 2000 og lokun hússins frá 1. ágúst 2000 verði ekki orðið við kröfum samkvæmt lið 1 í bréfi byggingafulltrúa og slökkviliðsstjóra frá 20. júní 2000 um brýnustu úrbætur.



21. Ásabyggð 9. , Nýjar dyr.
(Verknúmer: BN000192)

050353-7619 Hjalti Jón Sveinsson
Ásabyggð 9 600 Akureyri

Erindi dags. 30.05.2000 þar sem Hjalti Jón Sveinsson, kt: 050353-7619 sækir um leyfi til að setja nýjar dyr út í garð sem snúa í suður í Ásabyggð 9 samkvæmt meðfylgjandi teikningum eftir Indriða Arnórsson, Búðasíðu 6.
Byggingafulltrúi hefur samþykkt erindið þann 15.06.2000 þar sem það brýtur ekki í bága við reglugerð.


22. Gleráreyrar 1. , Byggingarleyfi f. dælustöð.
Verknúmer: BN000231

550978-0169 Hita- og vatnsveita Akureyrar
Rangárvöllum 600 Akureyri

Erindi dags. 09.06.2000 þar sem Hita- og vatnsveita Akureyrar, kt: 5509-0169 sækir um byggingarleyfi fyrir dælustöð að Gleráreyrum 1 samkvæmt meðfylgjandi teikningum dags. 05.06.2000 eftir Gísla Kristinsson, kt: 261150-3369, Kaupvangsstræti 23.
Jafnframt er sótt um leyfi til að fara lítilsháttar út fyrir byggingarreit til austurs, vesturs og suðurs.
Byggingafulltrúi hefur samþykkt erindið þann 21.06.2000 þar sem það brýtur ekki í bága við reglugerð.


23. Holtateigur 28-34. , Umsókn um byggingarleyfi.
Verknúmer: BN000172

500189-1509 Trésmíðaverkst Sveins Heið ehf
Skipagötu 16 600 Akureyri

Erindi dagsett 09.05.2000 og leiðrétt gögn 15.06.2000 þar sem Sveinn Heiðar Jónsson f.h. Trésmíðaverkstæði Sveins Heiðars, kt: 500189-1509, Skipagötu 16 sækir um byggingarleyfi fyrir raðhúsi á lóðinni númer 28-34 við Holtateig samkvæmt meðfylgjandi teikningu dags. 05.05.2000 eftir Gísla Kristinsson Arkitektarstofunni Grófargili.
Byggingafulltrúi hefur samþykkt erindið þann 21.06.2000 þar sem það brýtur ekki í bága við reglugerð.


24. Höfðahlíð 1. , Umsókn um byggingarstjóra.
Verknúmer: BN000255

070549-2719 Jakob Hilmar Antonsson
Bakkahlíð 25 603 Akureyri

Erindi dags. 12.06.2000 þar sem Hilmar Antonsson, kt: 070549-2719, Bakkahlíð 25, sækir um leyfi til að vera byggingarstjóri vegna framkvæmda við innréttingu íbúða í Höfðahlíð 1, 1. hæð.
Byggingafulltrúi hefur samþykkt erindið þann 22.06.2000 þar sem umsækjandi uppfyllir skilyrði reglugerðar.


25. Langholt 19. , Breyting á útliti.
(Verknúmer: BN000253)

180256-2969 Steinunn Benna Hreiðarsdóttir
Langholt 19 603 Akureyri

Erindi dags. 21.06.2000 þar sem Steinunn Benna Hreiðarsdóttir, kt: 180256-2969, Langholti 19, sækir um leyfi til setja glugga á geymslu í kjallara samkvæmt meðfylgjandi teikningum dags. í júní 2000 eftir Mikael Jóhannesson.
Byggingafulltrúi hefur samþykkt erindið þann 22.06.2000 þar sem það brýtur ekki í bága við reglugerð.


26. Laufásgata 5. , Umsókn um byggingarstjóra.
(Verknúmer: BN000247)

010742-3909 Ólafur Ólafsson
Rauðamýri 17 600 Akureyri

Erindi dags. 01.06.2000 þar sem Ólafur Ólafsson, kt: 010742-3909, Rauðamýri 17, sækir um leyfi til að vera byggingarstjóri vegna framkvæmda við Laufásgötu 5.
Byggingafulltrúi hefur samþykkt erindið þann 15.06.2000 þar sem umsækjandi uppfyllir skilyrði reglugerðar.


27. Laugargata 2. , Bílgeymsla.
(Verknúmer: BN000233)

120863-3479 Stefán Þór Ingvason
Laugargötu 1 600 Akureyri

Erindi dags. 04.05.2000 þar sem Stefán Ingvason, kt: 120863-3479 sækir um leyfi til að byggja bílgeymslu samkvæmt meðfylgjandi teikningum eftir Fanneyju Hauksdóttur, Kaupangi v/Mýrarveg. Bílgeymslan er yfir stærðarmörkun samkvæmt grein 113 byggingarreglugerð.
Grenndarkynningu er lokið og gerði enginn athugasemdir við erindið.
Byggingafulltrúi hefur samþykkt erindið þann 20.06.2000 þar sem það brýtur ekki í bága við reglugerð.


28. Mosateigur 5. , Byggingarleyfi.
Verknúmer: BN000239

281247-3529 Þorsteinn Jökull Vilhjálmsson
Flögusíða 1 603 Akureyri

Erindi dags. 10.06.2000 þar sem Þorsteinn Jökull Vilhjálmsson, kt: 281247-3529 sækir um leyfi til að byggja á lóðinni nr. 5 við Mosateig samkvæmt meðfylgjandi teikningum dags. 01.11.1999 eftir Harald Árnason á H.S.Á. Teiknistofunni, Dalsbraut 1, Akureyri.
Byggingafulltrúi hefur samþykkt erindið þann 22.06.2000 þar sem það brýtur ekki í bága við reglugerð.


29. Víðivellir. Oddeyrarskóli. , Umsókn um byggingarstjóra.
Verknúmer: BN000237

080264-3729 Daníel Þór Hilmarsson
Brimnesbraut 31 620 Dalvík

Erindi dags. 01.06.2000 þar sem Daníel Þór Hilmarsson, kt: 080264-3729, Brimnesbraut 31, 620 Dalvík sækir um leyfi til að vera byggastjóri vegna framkvæmda við viðbyggingu við Oddeyrarskóla við Víðivelli.
Byggingafulltrúi hefur samþykkt erindið þann 15.06.2000 þar sem umsækjandi uppfyllir skilyrði reglugerðar.


30. Viðurkenning iðnmeistara. , Viðurkenning húsasmíðameistara.
Verknúmer: BN000236

080264-3729 Daníel Þór Hilmarsson
Brimnesbraut 31 620 Dalvík

Erindi dags. 01.06.2000 þar sem Daníel Þór Hilmarsson, kt: 080264-3729, Brimnesbraut 31, 620 Dalvík, sækir um löggildingu sem húsasmíðameistari í lögsagnarumdæmi Akureyrar.
Meðfylgjandi er vottorð frá byggingafulltrúanum á Dalvík um að hann hafi starfað þar með löggildingu a.m.k. þrjú síðustu ár.
Byggingafulltrúi hefur samþykkt erindið þann 15.06.2000 þar sem umsækjandi uppfyllir skilyrði reglugerðar.


31. Þingvallastræti 4. , Umsókn um byggingarstjóra.
Verknúmer: BN000248
091253-3489 Helgi Snorrason
Rimasíða 4 603 Akureyri

Erindi dags. 16.06.2000 þar sem Helgi Snorrason, kt: 091253-3489, Rimasíðu 4 sækir um leyfi til að vera byggingarstjóri vegna framkvæmda við ris, Þingvallastræti 4.
Byggingafulltrúi hefur samþykkt erindið þann 22.06.2000 þar sem umsækjandi uppfyllir skilyrði reglugerðar.








Útlit síðu:

Haus_midbaer

Þetta vefsvæði byggir á Eplica