Beint í leiðarkerfi vefsins.
„Akureyri er alveg mátulega stór og aldrei tafir í umferðinni. Hér er allt til alls en maður nær andanum hér vegna þess að áreitið er hæfilegt. Svo er ekki verra að það tekur aðeins nokkrar mínútur að komast á skíði.” – Ásdís Arnardóttir
| Nefndarmenn | Starfsmenn | ||
| Hermann Jón Tómasson formaður Helena Þuríður Karlsdóttir Sigrún Björk Jakobsdóttir Kristín Sigfúsdóttir | Dagný Harðardóttir Gunnar Frímannsson fundarritari | ||
1. Íbúalýðræði
2005060044
Á síðasta fundi fól stjórnsýslunefnd
formanni að semja drög að reglum um kosningar um afmörkuð mál. Drögin voru
lögð fram til umræðu ásamt minnisblaði dags. 19. febrúar 2010 um samráð
og kosningar.
Afgreiðslu frestað.
2. Notendaráð
2007020106
Stjórnsýslunefnd fjallaði um reynslu
af notendaráðum sem stofnuð hafa verið við Amtsbókasafnið, Sundlaug Akureyrar
og Tónlistarskólann á Akureyri. Auk þess hafa verið stofnuð skólaráð við
grunnskóla og foreldraráð við leikskóla sveitarfélagsins.
Stjórnsýslunefnd lýsir yfir ánægju
sinni með góða reynslu af notendaráðum. Nefndin hvetur til þess að áfram
verði haldið á sömu braut og næst verði stofnuð notendaráð við Plastiðjuna
Bjarg/Iðjulund og Strætisvagna Akureyrar.
3. Hverfisnefndir
og hverfisráð - fundargerðir
2007020100
Eftirtaldar fundargerðir voru lagðar
fram til kynningar:
Fundargerð hverfisráðs Hríseyjar dags.
19. janúar 2010.
Fundargerð hverfisnefndar Lunda- og
Gerðahverfis dags. 20. janúar 2010.
Fundargerð hverfisnefndar Holta- og
Hlíðahverfis dags. 9. febrúar 2010.
Fundargerð samráðsnefndar Grímseyjar
dags. 26. janúar 2010.
Fundi slitið.