Beint í leiðarkerfi vefsins.
„Akureyri er alveg mátulega stór og aldrei tafir í umferðinni. Hér er allt til alls en maður nær andanum hér vegna þess að áreitið er hæfilegt. Svo er ekki verra að það tekur aðeins nokkrar mínútur að komast á skíði.” – Ásdís Arnardóttir
| Nefndarmenn | Starfsmenn | ||
| Elín Margrét Hallgrímsdóttir formaður Anna Halla Emilsdóttir Dýrleif Skjóldal Sigrún Stefánsdóttir Þorlákur Axel Jónsson | Helga Hauksdóttir, fulltrúi skólastjóra Sonja Dröfn Helgadóttir, fulltrúi kennara Heimir Freysson, fulltrúi kennara Haraldur Ingólfsson, fulltrúi foreldra Gunnar Gíslason, fræðslustjóri, ritaði fundargerð | ||
1. Til verndar réttindum og öryggi barna
2007030249
Benedikt Sigurðarson MEd mætti á fundinn og gerði grein fyrir tillögum að ferli til leiðsagnar við meðferð kvartana vegna framferðis starfsmanna sveitarfélaga og ófullnægjandi úrlausnar mála. Þessi tillaga er byggð á stefnumörkun stjórnvalda í New Brunswick fylki í Kanada.
Skólanefnd þakkar Benedikt fyrir það frumkvæði að koma þessum tillögum á framfæri. Skólanefnd samþykkir að fela fræðslustjóra að vinna að slíku ferli í samráði við skólastjóra.
Benedikt yfirgaf fundinn kl. 15.45
2. Sérkennsla í grunnskólum - úthlutun
2007030185
Fyrir fundinum lá tillaga að úthlutun kennslustunda til sérkennslu til grunnskóla Akureyrarbæjar.
Skólanefnd samþykkir eftirfarandi úthlutun kennslustunda til sérkennslu til viðbótar því sem samþykkt var 30. mars sl. og er þessi samþykkt byggð á tillögu frá sérkennsluráðgjafa skólateymis fjölskyldudeildar:
Brekkuskóli 85 stundir
Oddeyrarskóli 100 stundir
Móttökudeild 40 stundir
Glerárskóli 82 stundir
Lundarskóli 128 stundir
Sérdeild 45 stundir
Síðuskóli 124 stundir
Sérdeild 165 stundir
Giljaskóli 110 stundir
Sérdeild 155 stundir
Hlíðarskóli 268 stundir
Alls gera þetta 1.302 stundir sem er úthlutað til viðbótar þeim 125 stundum sem áður hefur verið úthlutað til grunnskólanna. Það er í valdi og á ábyrgð skólastjóra grunnskólanna hvernig þessi þjónusta er skipulögð í samræmi við það fjármagn sem skólarnir hafa til ráðstöfunar.
Haraldur yfirgaf fundinn kl. 15.55
3. Naustahverfi - skólamál
2007030174
Erindi dags. 6. mars 2007 frá Bjarna Sigurðssyni f.h. hverfisnefndar Naustahverfis þar sem óskað er eftir fundi með fræðslustjóra og skólanefnd Akureyrarbæjar vegna stöðu skólamála í Naustahverfi.
Skólanefnd felur fræðslustjóra að boða til fundar með hverfisnefndinni.
4. Foreldrafræðsla
2007050027
Tillaga að fræðslu og stuðningi við foreldra um uppeldi barna þeirra frá því á meðgöngu til 18 ára aldurs hefur verið í vinnslu í stýrihópi PMT/SMT verkefnisins 2006-2007. Þessi tillaga var lögð fyrir fundinn til kynningar og umræðu.
Skólanefnd telur þetta verkefni vera mikilvægt og felur fræðslustjóra að vinna að því áfram.
5. Fjölgreinafjör í frístund
2007050029
Fyrir fundinn voru lögð drög að skipulagi tilboðs til 7 ára barna á Akureyri, sem felur í sér að bjóða börnum á þessum aldri kynningu á íþróttagreinum og ýmsum tómstundatilboðum tvisvar í viku, 40 mínútur hvert skipti. Þessi drög eru komin frá starfshópi sem í eiga sæti fulltrúar, skóladeildar, ÍBA, íþróttadeildar og samfélags- og mannréttindadeildar.
Skólanefnd tekur vel í þessa hugmynd og felur fræðslustjóra að óska eftir ítarlegri upplýsingum um skipulagið og kostnað við það áður en til afgreiðslu kemur.
6. Jöfnunarsjóður - kennsluráðgjafi fyrir blind og sjónskert börn
2007040071
Erindi dags. 18. apríl 2007 frá Jöfnunarsjóði sveitarfélaga þar sem óskað er eftir því við framkvæmdastjóra sveitarfélaga að þeir upplýsi skólastjórnendur, kennara og aðra starfsmenn leik- og grunnskóla sveitarfélagsins um ráðningu kennsluráðgjafa fyrir blind og sjónskert börn á landsvísu og hvetji þá til að nýta sér þá ráðgjöf sem í boði er fyrir viðkomandi nemendur.
Kynnt.
7. Kynning á störfum félagsráðgjafa í skólum
2007050025
Erindi dagsett 10. apríl 2007, frá stöðugildanefnd Félagsráðgjafafélags Íslands og Félagi skólafélagsráðgjafa, þar sem komið er á framfæri upplýsingum um menntun og störf skólafélagsráðgjafa og hvernig sérsvið þeirra nýtist í skólakerfinu. Þar kemur m.a. fram að skólafélagsráðgjafar eru sérfræðingar í mótun úrræða og greiningu á umhverfisþáttum sem skipta sköpum varðandi heilsusamlegt vinnuumhverfi. Menntun þeirra gerir þá hæfa til að vinna með samskiptaerfiðleika og félagslegan vanda nemenda sem getur haft áhrif á námshæfni þeirra. Fram kemur einnig ábending um það að margir skólafélagsráðgjafar starfi í skólum landsins undir heiti námsráðgjafa og er sú staða talin algerlega óviðunandi.
Kynnt.
8. Skólamálanefnd Sambands íslenskra sveitarfélaga
2007050028
Fyrir fundinum lágu fundargerðir skólamálanefndar Sambands íslenskra sveitarfélaga, til kynningar.
Kynnt.
Fundi slitið.