Stjórnkerfið

„Akureyri er alveg mátulega stór og aldrei tafir í umferðinni. Hér er allt til alls en maður nær andanum hér vegna þess að áreitið er hæfilegt. Svo er ekki verra að það tekur aðeins nokkrar mínútur að komast á skíði.” – Ásdís Arnardóttir

Skólanefnd - 18. maí 2009



Skólanefnd - Fundargerð
11. fundur
18. maí 2009   kl. 14:00 - 16:15
Fundarsalur á 2. hæð í Glerárgötu 26


Nefndarmenn Starfsmenn
Elín Margrét Hallgrímsdóttir formaður
Sigrún Stefánsdóttir
Þorlákur Axel Jónsson
Dýrleif Skjóldal
Sigurveig S. Bergsteinsdóttir
Vilborg Þórarinsdóttir foreldri
Jónína Sveinbjörnsdóttir grunnskólakennari
Ólafur Thoroddsen skólastjóri
Hafþór Einarsson skrifstofustjóri
Gunnar Gíslason fræðslustjóri ritaði fundargerð




1.          Dagforeldrar - staða mála
2009050064
Fyrir fundinn voru lagðar upplýsingar um stöðu mála hjá dagforeldrum. Nú eru starfandi 43 dagforeldrar og hjá þeim eru 186 börn sem bæjarfélagið greiðir með. Þá voru umræður um leiðir til að lækka kostnað við niðurgreiðslurnar.
Guðrún S. Kristinsdóttir daggæsluráðgjafi sat fundinn undir þessum lið.
Lagt fram til kynningar.


Guðrún S. Kristinsdóttir yfirgaf fundinn kl. 14.30.

2.          Skólamötuneyti grunnskóla - rekstur 2009
2009020183
Fyrir fundinn var lagt uppgjör á rekstri mötuneytanna fyrir fyrstu þrjá mánuði ársins og útkomuspá fyrir árið. Þar kemur fram að það stefnir í 3, 7 milljón króna halla á árinu.
Afgreiðslu frestað.


3.          Fræðslu- og uppeldismál - rekstur 2009
2009010078
Fyrir fundinn var lögð launagreining í fræðslumálum.
Lagt fram til kynningar.


4.          Þriggja ára áætlun 2010-2012
2009020054
Á fundinum var farið yfir nýjar upplýsingar um fjárhagsstöðu sveitarfélaga  til kynningar og umræðu.


5.          Skóladagatöl/starfsáætlun leik-, grunn- og Tónlistarskóla 2009 -2010
2009010252
Fyrir fundinn var lögð tillaga að skóladagatölum leik-, grunn- og Tónlistarskóla en leitað hafði verið leiða til að samræma þau betur en fyrri tillaga gerði ráð fyrir.
Skólanefnd samþykkir fyrirliggjandi tillögu.


6.          Viðmiðunarreglur - nemendur í skóla utan lögheimilissveitarfélags.
2009050063
Fyrir fundinn var lögð tillaga að reglum um greiðslur til sveitarfélaga vegna nemenda frá Akureyri sem stunda nám við skóla í öðru sveitarfélagi.
Skólanefnd samþykkir fyrirliggjandi tillögu.


7.          Grímsey - skólastarf
2009050062
Fyrir fundinn voru lagðar upplýsingar um skólahald í Grímsey en fræðslustjóri var þar nýlega í kynnisferð ásamt bæjarstjóra og nokkrum embættismönnum öðrum.
Skólanefnd þakkar kynninguna og fagnar komu grunnskólans í Grímsey í hóp grunnskóla Akureyrarbæjar.

Björg Sigurvinsdóttir leikskólafulltrúi mætti á fundinn undir þessum lið og þakkaði skólanefnd fyrir samstarfið í vetur. Skólanefnd þakkar Björgu fyrir vel unnin störf í vetur.



Fundi slitið.






Útlit síðu:

Haus_kirkja3

Þetta vefsvæði byggir á Eplica