Stjórnkerfið

„Akureyri er alveg mátulega stór og aldrei tafir í umferðinni. Hér er allt til alls en maður nær andanum hér vegna þess að áreitið er hæfilegt. Svo er ekki verra að það tekur aðeins nokkrar mínútur að komast á skíði.” – Ásdís Arnardóttir

Skólanefnd - 20. apríl 2009



Skólanefnd - Fundargerð
9. fundur
20. apríl 2009   kl. 14:05 - 16:52
Fundarsalur á 2. hæð í Glerárgötu 26


Nefndarmenn Starfsmenn
Sigrún Stefánsdóttir varaformaður
Lára Stefánsdóttir
Jóna Jónsdóttir
Dýrleif Skjóldal
Sigurveig S. Bergsteinsdóttir
Hafþór Einarsson skrifstofustjóri
Vilborg Þórarinsdóttir foreldri
Jónína Sveinbjörnsdóttir grunnskólakennari
Anna Lilja Sævarsdóttir leikskólakennari
Kristlaug Þ. Svavarssdóttir leikskólastjóri
Jón Baldvin Hannesson skólastjóri
Björg Sigurvinsdóttir leikskólafulltrúi
Gunnar Gíslason fundarritari




1.          Opnunartími leikskóla
2009040028
Rætt var um hugmyndir að útfærslu á breyttum opnunartíma leikskóla. Tillaga var um að skoða hvort áfram verði boðið upp á þann möguleika að foreldrar geti keypt tíma frá 7.30 - 7.45 og 16.15 - 16.30 ef sex eða fleiri foreldrar óska eftir því í hverjum leikskóla fyrir sig.
Skólanefnd frestar afgreiðslu og felur leikskólafulltrúa að afla frekari gagna í samræmi við umræður á fundinum.


2.          Þriggja ára áætlun 2010-2012
2009020054
Á fundinum var farið yfir stöðuna varðandi þær hugmyndir sem kynntar hafa verið hjá bænum til að lækka launakostnað og viðbrögð við þeim. Fyrir fundinn var lagt bréf dags. 7. apríl sl. frá skólamálanefnd Sambands íslenskra sveitarfélaga ásamt samantekt úr könnun sem skólamálanefnd gerði á hagræðingaraðgerðum sveitarfélaga í skóla- og fræðslumálum. Gögnum var safnað á tímabilinu frá 23. febrúar - 24. mars sl.

3.          Viðmiðunarreglur fyrir frístund í grunnskólum Akureyrar
2009010253
Fyrir fundinn var lögð tillaga að breytingum á rekstri og starfsemi frístunda í grunnskólum Akureyrarbæjar til kynningar og umræðu.
Skólanefnd felur fræðslustjóra að vinna tillögurnar áfram með hliðsjón af umræðum á fundinum.


4.          Fræðslu- og uppeldismál - rekstur 2009
2009010078
Fyrir fundinn var lagt rekstraryfirlit  fyrir fyrstu þrjá mánuði ársins. Þar kom fram að reksturinn er í jafnvægi en samt þarf að fylgjast vel með þróuninni.
Tekið fyrir.


Jón Baldvin Hannesson, Hafþór Einarsson og Anna Lilja Sævarsdóttir yfirgáfu fundinn kl. 16.00.


5.          Tónlistarskólinn - rekstrarúttekt
2009040029
Fyrir fundinn var lögð til kynningar greining á fjárhagsáætlunTónlistarskólans fyrir árið 2009.
Tekið fyrir.


Vilborg Þórarinsdóttir yfirgaf fundinn kl. 16.20.


6.          ESPAD - evrópsk vímuefnarannsókn 2009
2009030139
Erindi dags. 27. mars 2009 frá Guðríði Ólafsdóttur hjá Háskólanum á Akureyri þar sem hún sendir sveitarfélaginu niðurstöður úr viðamestu alþjóðlegu rannsókn samtímans á áfengis-, vímuefna- og tóbaksnotkun unglinga og hafa fyrri niðurstöður þessarar rannsóknar legið til grundvallar forvarnastarfi víðast hvar í Evrópu.
Skólanefnd lýsir ánægju sinni með íslenska unglinga.


7.          Skólamálanefnd 2009
2009040059
Fyrir fundinn voru lagðar til kynningar fundargerðir 40. til og með 43. fundar skólamálnefndar Sambands Íslenskra sveitarfélaga.

8.          Almannaheill
2008100088
Fyrir fundinn voru lagðar  til kynningar og umræðu fundargerðir almannaheillanefndar frá því í desember 2008 - apríl 2009.


Fundi slitið.






Útlit síðu:

Haus_samkomuhusid6

Þetta vefsvæði byggir á Eplica