Stjórnkerfið

„Akureyri er alveg mátulega stór og aldrei tafir í umferðinni. Hér er allt til alls en maður nær andanum hér vegna þess að áreitið er hæfilegt. Svo er ekki verra að það tekur aðeins nokkrar mínútur að komast á skíði.” – Ásdís Arnardóttir

Skólanefnd - 17. nóvember 2008



Skólanefnd - Fundargerð
18. fundur
17. nóvember 2008   kl. 15:00 - 17:12
Fundarsalur á 2. hæð í Glerárgötu 26


Nefndarmenn Starfsmenn
Elín Margrét Hallgrímsdóttir formaður
Sigrún Stefánsdóttir
Lára Stefánsdóttir
Dýrleif Skjóldal
Sigurveig S. Bergsteinsdóttir
Hólmfríður Þórðardóttir foreldri
Þórhildur Helga Þorleifsdóttir skólastjóri
Jónína Sveinbjörnsdóttir grunnskólakennari
Gunnar Gíslason fræðslustjóri ritaði fundargerð




1.          Dagforeldrar - skilyrði fyrir veitingu leyfis til daggæslu barna í heimahúsi
2008090079
Erindi dagsett 16. september 2008 frá Guðrúnu S. Kristinsdóttur daggæsluráðgjafa á skóladeild, þar sem hún óskar eftir því að breytingar verði gerðar á skilyrðum fyrir daggæsluleyfi og endurnýjun daggæsluleyfis. Breytingarnar lúta að því að sett verði inn skilyrði vegna gæludýra á heimilum dagforeldra, en slík skilyrði hafa hingað til ekki verið til staðar.
Skólanefnd samþykkir erindið og felur daggæsluráðgjafa að kynna skilyrðin fyrir foreldrum og dagforeldrum.


2.          Almannaheill
2008100088
Farið var yfir störf almannaheillanefndar og ráðgjafartorg á akureyri.is kynnt.


3.          Frístund skólanna - lokun á starfsdögum
2008100112
Erindi dagsett 27. október 2008 frá Ólafíu Kristínu Guðmundsdóttur fyrir hönd starfsmanna í frístund grunnskóla Akureyrarbæjar. Tilgangur erindisins er að vekja athygli á óánægju starfsmanna í frístund með það misræmi sem er milli leikskóla og frístundar hvað varðar starfsdaga. Í frístund eru engir starfsdagar en í leikskólum eru 3 heilir dagar á hverju skólaári. Starfsmenn frístunda geta ekki skilið af hverju sú mismunun er því starf sem fram fer með börnum á aldrinum 6 til 9 ára er alveg jafn mikilvægt og það starf sem fram fer með börnum á aldrinum 2ja til 6 ára. Þá er bent á  að börnum sé ekki hollt að hafa frístundina opna á þeim dögum sem skólahald liggur niðri vegna t.d. jóla- og páskafría.
Skólanefnd felur fræðslustjóra að vinna tillögu að útfærslu á fyrirkomulagi starfsdaga í samráði við forstöðumenn frístundar og skólastjóra og leggja fyrir skólanefnd í desember nk.


4.          Valgreinar í grunnskólum Akureyrarbæjar
2008080083
Á fundi sínum 28. ágúst sl. óskaði skólanefnd eftir  heildstæðum upplýsingum um val nemenda, þ.e. val innan skóla, samval og metið val. Þá óskaði skólanefnd eftir upplýsingum um hvernig fjarnám í framhaldsskóla væri skipulagt innan grunnskólanna, hversu margir stunda það nám og í hvaða greinum. Þessar upplýsingar voru lagðar fram ásamt kynningu sem formaður skólanefndar flutti á bæjarstjórnarfundi þann 7. október sl.


5.          Lýðheilsustöð - Allt hefur áhrif, einkum við sjálf!
2007050103
Fyrir fundinn var lögð skýrsla frá Lýðheilsustöð, sem sýnir niðurstöður úr könnun sem send var í maí 2007 til allra leik- og grunnskólastjóra í landinu. Í könnuninni var spurt um stefnu skólans og  skólastarf sem snertir hreyfingu, næringu, líðan og fleiri heilsuþætti, svo sem um aðbúnað nemenda, meðal annars framboð á mat í skólanum. Í skýrslunni sem lá fyrir fundinum er sérstaklega horft til niðurstaðna í leik- og grunnskólum á Akureyri. Á fundinum var farið yfir niðurstöður sem snúa að grunnskólunum 7 sem þátt tóku.
Skólanefnd þakkar fyrir skýrsluna en leggur áherslu á að skýrsla af þessu tagi eigi að veita greinarbetri upplýsingar um stöðu heilsusamlegra lífshátta barna.


6.          Samþykkt um skólanefnd
2008100125
Tillaga að endurskoðaðri samþykkt um skólanefnd var lögð fyrir fundinn í ljósi nýrra laga um leikskóla og laga um grunnskóla.
Skólanefnd samþykkir tillöguna fyrir sitt leyti og vísar henni til stjórnsýslunefndar.



Fundi slitið.






Útlit síðu:

Haus_kirkja3

Þetta vefsvæði byggir á Eplica