Stjórnkerfið

„Akureyri er alveg mátulega stór og aldrei tafir í umferðinni. Hér er allt til alls en maður nær andanum hér vegna þess að áreitið er hæfilegt. Svo er ekki verra að það tekur aðeins nokkrar mínútur að komast á skíði.” – Ásdís Arnardóttir

Samfélags - 18. júní 2007



Samfélags- og mannréttindaráð - Fundargerð
16. fundur
18. júní 2007   kl. 16:10 - 17:55
Fundarherbergi Menntasmiðjunnar á 3. hæð í Rósenborg


Nefndarmenn Starfsmenn
Margrét Kristín Helgadóttir formaður
Baldur Dýrfjörð
María Hólmfríður Marinósdóttir
Margrét Ríkarðsdóttir
Katrín Björg Ríkarðsdóttir fundarritari




Alfa Aradóttir forstöðumaður félagsstarfs í hverfum sat fundinn undir 1.- 3. lið.

1.          Félagsmiðstöðvar fyrir unglinga á grunnskólaaldri
2007050115
Erindi dags. 18. maí 2007 frá Hólmfríði Þórðardóttur og Haraldi Ingólfssyni f.h. Samtaka, svæðisráðs foreldra nemenda í grunnskólum Akureyrarbæjar varðandi félagsmiðstöðvar fyrir unglinga á grunnskólaaldri.
Lagt fram til kynningar.


2.          Félagsmiðstöðvar unglinga
2006110069
Framhald umræðu frá 18. maí sl. um hugmyndir að tilraunaverkefni um tómstundaframboð fyrir unglinga í Rósenborg.
Samfélags- og mannréttindaráð felur formanni, framkvæmdastjóra og forstöðumanni félagsstarfs í hverfum að móta frekari tillögur.


3.          Fjölgreinafjör í frístund
2007050029
Lögð fram tillaga að samstarfsverkefni samfélags- og mannréttindadeildar, íþróttadeildar og skóladeildar um fjölgreinafjör í frístund. Um er að ræða tilboð til 7 ára barna á Akureyri sem felur í sér að bjóða börnum á þessum aldri kynningu á íþróttagreinum og ýmsum tómstundatilboðum tvisvar í viku, 40 mínútur hvert skipti.
Samfélags- og mannréttindaráð samþykkir aðild að verkefninu sem tilraunaverkefni til eins árs.


4.          Verslunarmannahelgin - Ein með öllu 2007
2007030205
Rætt um áherslur samfélags- og mannréttindaráðs vegna verslunarmannahelgarinnar.
Samfélags- og mannréttindaráð leggur áherslu á að í markaðssetningu og kynningarstarfi fyrir verslunarmannahelgina 2007 sé fjölskyldan og viðburðir fyrir hana í forgrunni.


5.          Flugmódelfélag Akureyrar - styrkbeiðni 2007
2007050050
Erindi dags. 7. maí 2007 frá Guðjóni Ólafssyni, formanni Flugmódelfélags Akureyrar þar sem óskað er eftir styrk að upphæð kr. 250.000 vegna flugsamkomu sem haldin verður á Melgerðismelum 11. ágúst nk.
Samfélags- og mannréttindaráð samþykkir að veita Flugmódelfélagi Akureyrar styrk að upphæð kr. 80.000 vegna flugsamkomu.


6.          Skákfélag Akureyrar - styrkbeiðni
2007060047
Erindi dags. 31. maí 2007 frá Gylfa Þórhallssyni f.h. Skákfélags Akureyrar þar sem sótt er um styrk að upphæð kr. 78.000 til að standa straum af ferðakostnaði ungra skákmanna á Politiken Cup í Danmörku.
Samfélags- og mannréttindaráð samþykkir að veita Skákfélagi Akureyrar styrk að upphæð kr. 78.000 vegna ferðakostnaðar ungra skákmanna.


7.          Listsmiðjur barna - styrkbeiðni
2007060051
Erindi dags. 7. júní 2007 frá Örnu Valsdóttur þar sem sótt er um styrk til að standa straum af kostnaði við smiðjur barna á aldrinum 6 til 16 ára sem koma til með að vinna að þema Jónsmessuleiks 2007 sem að þessu sinni er "Þjóðhetjur og -skörungar" sem haldin verður á Jónsmessunni í Kjarnaskógi 23. júní nk.
Samfélags- og mannréttindaráð samþykkir að veita styrk að upphæð kr. 100.000 til listsmiðja barna vegna Jónsmessuleiks 2007.


8.          Siglingaklúbburinn Nökkvi - styrkbeiðni
2007060058
Erindi dags. 11. júní 2007 frá Rúnari Þór Björnssyni f.h. Siglingakúbbsins Nökkva þar sem óskað er eftir styrk að upphæð kr. 50.000 vegna siglingakennslu barna og unglinga í Hrísey.
Samfélags- og mannréttindaráð samþykkir að veita Siglingaklúbbnum Nökkva styrk að upphæð kr. 50.000 vegna siglingakennslu barna og unglinga í Hrísey.


9.          Jafnrétti í leik- og grunnskólum - samvinnuverkefni
2007060061
Kynnt var hugmynd að samvinnuverkefni um jafnréttisstarf og -fræðslu í leik- og grunnskólum. Óskað hefur verið eftir þátttöku Akureyrarbæjar og hafa Lundarsel og Lundarskóli sýnt áhuga á þátttöku.
Samfélags- og mannréttindaráð samþykkir aðild að verkefninu.



Fundi slitið.






Útlit síðu:

Haus_Blaakannan

Þetta vefsvæði byggir á Eplica