Beint í leiðarkerfi vefsins.
„Akureyri er alveg mátulega stór og aldrei tafir í umferðinni. Hér er allt til alls en maður nær andanum hér vegna þess að áreitið er hæfilegt. Svo er ekki verra að það tekur aðeins nokkrar mínútur að komast á skíði.” – Ásdís Arnardóttir
| Nefndarmenn | Starfsmenn | ||
| Margrét Kristín Helgadóttir formaður Baldur Dýrfjörð María Hólmfríður Marinósdóttir Guðlaug Kristinsdóttir Margrét Ríkarðsdóttir | Katrín Björg Ríkarðsdóttir fundarritari | ||
1. Lýðheilsustöð - Allt hefur áhrif, einkum við sjálf!
2007050103
Bryndís Arnarsdóttir forvarnafulltrúi kynnti drög að Heilsueflingarstefnu sem unnin er í samræmi við verkefnið Allt hefur áhrif, einkum við sjálf!
Samfélags- og mannréttindaráð felur forvarnafulltrúa að senda drögin til viðkomandi nefnda til umfjöllunar.
2. Vinnuhópur um Frístund
2005060093
Alfa Aradóttir forstöðumaður félagsstarfs í hverfum og fulltrúi samfélags- og mannréttindadeildar í vinnuhópi um Frístund kynnti starf og tillögur hópsins.
3. Félagsmiðstöðvar unglinga
2006110069
Alfa Aradóttir forstöðumaður félagsstarfs í hverfum kynnti hugmyndir að tilraunaverkefni um tómstundaframboð fyrir unglinga í Rósenborg.
Margrét Ríkarðsdóttir vék af fundi kl. 17.00 og María H. Marinósdóttir kl. 17.13.
4. Sumarbúðirnar Ástjörn - styrkbeiðni
2007030048
Erindi dags. 1. mars 2007 frá Árna Hilmarssyni f.h. Sumarbúðanna Ástjarnar þar sem sótt er um rekstrarstyrk að upphæð kr. 250.000.
Samfélags- og mannréttindaráð samþykkir að veita Sumarbúðunum Ástjörn rekstrarstyrk fyrir starfsárið 2007 að upphæð kr. 125.000.
5. Afmæli jafnréttisnefndar Akureyrarbæjar
2007050107
Kynntar hugmyndir að málþingi og öðrum uppákomum í tilefni af 25 ára afmæli jafnréttisnefndar á Akureyri.
Samfélags- og mannréttindaráð felur formanni og deildarstjóra að vinna áfram að málinu.
Fundi slitið.