Beint í leiðarkerfi vefsins.
„Akureyri er alveg mátulega stór og aldrei tafir í umferðinni. Hér er allt til alls en maður nær andanum hér vegna þess að áreitið er hæfilegt. Svo er ekki verra að það tekur aðeins nokkrar mínútur að komast á skíði.” – Ásdís Arnardóttir
| Nefndarmenn | Starfsmenn | ||
| Þorlákur Axel Jónsson formaður Baldur Dýrfjörð María Hólmfríður Marinósdóttir Gerður Jónsdóttir Margrét Ríkarðsdóttir | Katrín Björg Ríkarðsdóttir fundarritari | ||
1. Jafnrétti
kynjanna - nýlegar lagabreytingar
2010040024
Ingibjörg Elíasdóttir lögfræðingur á
Jafnréttisstofu mætti á fundinn undir þessum lið og kynnti nýlegar lagabreytingar
sem varða jafnrétti kynjanna. Um er að ræða breytingar á lögum nr. 85/2007
um veitingastaði, gististaði og skemmtanahald (bann við nektarsýningum),
breytingar á lögum nr. 2/1995 um hlutafélög (kynjakvótar í stjórnum),
breytingar á lögum nr. 138/1994 um einkahlutafélög (kynjakvótar í stjórnum)
og breytingar á almennum hegningarlögum nr. 19/1940 (mansal og bann við
kaupum á vændi).
2. Ungmennaráð
2007080057
Lögð fram tillaga að samþykkt fyrir
ungmennaráð á Akureyri. Til fundarins komu fulltrúar úr undirbúningshópi
ungmenna þau Marta Þórðardóttir, Valgeir Andri Ríkharðsson, Áki Sebastian
Frostason og Stefán Ernir Valmundarson.
Samfélags- og mannréttindaráð samþykkir
framlagða tillögu og vísar henni til bæjarstjórnar.
3. Saman
hópurinn, félag um forvarnir - styrkbeiðni 2010
2010010222
Erindi dags. 25. janúar 2010 frá Geir
Bjarnasyni f.h. Saman hópsins, félags um forvarnir, þar sem beðið er um
fjárstuðning sveitarfélagsins við forvarnastarf hópsins á árinu 2010.
Samfélags- og mannréttindaráð samþykkir
að veita Saman hópnum styrk að upphæð kr. 50.000.
4. Skáksamband
Íslands - styrkbeiðni 2010
2010020014
Erindi dags. 2. febrúar 2010 frá Skáksambandi
Íslands varðandi Norðurlandamót í skólaskák - einstaklingskeppni sem fram
fór í Færeyjum dagana 17.- 21. febrúar 2010. Þess er góðfúslega farið á
leit við Akureyrarbæ að hann taki þátt í þessu verkefni en að þessu sinni
keppti einn keppandi frá Akureyri fyrir Íslands hönd í sínum aldursflokki
á mótinu.
Samfélags- og mannréttindaráð samþykkir
að veita Skáksambandi Íslands styrk að upphæð kr. 50.000.
5. Viðar
Freyr Guðmundsson - styrkbeiðni
2010030005
Umsókn dags. 28. febrúar 2010 frá Viðari
Frey Guðmundssyni þar sem sótt er um styrk frá samfélags- og mannréttindaráði
að upphæð kr. 1.500.000 til framleiðslu og eftirvinnslu heimildar- og fræðslumyndar
um einelti og ofbeldi meðal barna.
Samfélags- og mannréttindaráð getur
ekki orðið við erindinu.
6. Bandalag
íslenskra skáta - góðverkadagurinn - styrkbeiðni
2010020090
Erindi dags. 19. febrúar 2010 frá Pétri
A. Maack, fjármálastjóra f.h. Bandalags íslenskra skáta þar sem óskað er
eftir styrk að upphæð kr. 25.000 - 50.000 við verkefnið "Góðverk dagsins"
sem haldið var um allt land dagana 22.- 26. febrúar 2010.
Samfélags- og mannréttindaráð getur
ekki orðið við erindinu.
7. Príma
- dansfélag MA - styrkbeiðni
2010030084
Erindi dags. 11. mars 2010 þar sem Karen
Jóhannsdóttir fyrir hönd Príma - dansfélags MA óskar eftir styrk að upphæð
kr. 100.000 til að halda Íslandsmeistarakeppni í freestyle.
Samfélags- og mannréttindaráð samþykkir
að veita Príma - dansfélagi MA styrk að upphæð kr. 75.000.
8. KFUM
og KFUK - styrkbeiðni 2010
2010030158
Erindi dags. 25. mars 2010 þar sem Jóhann
Þorsteinsson fyrir hönd KFUM og KFUK óskar eftir rekstrarstyrk að upphæð
kr. 400.000.
Samfélags- og mannréttindaráð samþykkir
að veita KFUM og KFUK styrk að upphæð kr. 300.000.
9. KFUM
og KFUK sumarbúðir - styrkbeiðni 2010
2010030159
Erindi dags. 25. mars 2010 þar sem Jóhann
Þorsteinsson fyrir hönd sumarbúða KFUM og KFUK við Hólavatn óskar eftir
rekstrarstyrk að upphæð kr. 800.000
Samfélags- og mannréttindaráð samþykkir
að veita sumarbúðum KFUM og KFUK við Hólavatn styrk að upphæð kr. 100.000.
10. Marimbasveit
Giljaskóla - styrkbeiðni
2010030179
Erindi dags. 30. mars 2010 frá Önnu
Þórunni Hjálmarsdóttur f.h. Marimbasveitar Giljaskóla þar sem óskað er
eftir styrk að upphæð kr. 1.111.000 fyrir ferð í Marimba sumarbúðir í Varberg
í Svíþjóð.
Samfélags- og mannréttindaráð samþykkir
að veita Marimbasveit Giljaskóla styrk að upphæð kr. 100.000. Baldur Dýrfjörð
tók ekki þátt í afgreiðslunni.
11. Siglingaklúbburinn
Nökkvi - styrkbeiðni 2010
2010030180
Erindi dags. 31. mars 2010 frá Rúnari
Þór Björnssyni f.h. Siglingaklúbbsins Nökkva þar sem óskað er eftir
styrk að upphæð kr. 250.000 vegna sumarnámskeiða fyrir börn.
Samfélags- og mannréttindaráð samþykkir
að veita Siglingaklúbbnum Nökkva styrk að upphæð kr. 250.000.
12. Margvís
ehf - styrkbeiðni 2010
2010040001
Erindi dags. 31. mars 2010 þar sem Guðrún
Kristín Blöndal f.h. Margvís ehf óskar eftir styrk að upphæð kr. 348.000
vegna lestrarnámskeiðs fyrir ólæsar konur af tælenskum uppruna.
Samfélags- og mannréttindaráð samþykkir
að veita Margvís ehf styrk að upphæð kr. 150.000.
13. MC
Nornir - mótorhjólaklúbbur - styrkbeiðni
2010040012
Erindi dags. 31. mars 2010 þar sem Hrönn
Arnheiður Björnsdóttir f.h. MC Norna óskar eftir styrk að upphæð kr. 100.000
til þess að standa fyrir skyndihjálparnámskeiðum og styrkja unglingastarf
klúbbsins.
Samfélags- og mannréttindaráð samþykkir
veita MC Nornum styrk að upphæð kr. 50.000.
14. Sumarbúðirnar
Ástjörn - styrkbeiðni 2010
2010040013
Erindi dags. 30. mars 2010 þar sem Árni
Hilmarsson f.h. Sumarbúðanna Ástjarnar óskar eftir rekstrarstyrk að upphæð
kr. 200.000.
Samfélags- og mannréttindaráð samþykkir
að veita Sumarbúðunum Ástjörn styrk að upphæð kr. 100.000.
Fundi slitið.