Stjórnkerfið

„Akureyri er alveg mátulega stór og aldrei tafir í umferðinni. Hér er allt til alls en maður nær andanum hér vegna þess að áreitið er hæfilegt. Svo er ekki verra að það tekur aðeins nokkrar mínútur að komast á skíði.” – Ásdís Arnardóttir

Samfélags - 12. mars 2008



Samfélags- og mannréttindaráð - Fundargerð
31. fundur
12. mars 2008   kl. 16:30 - 18:45
Trója austur 2. hæð Rósenborg


Nefndarmenn Starfsmenn
Margrét Kristín Helgadóttir formaður
Baldur Dýrfjörð
María Hólmfríður Marinósdóttir
Gerður Jónsdóttir
Ingólfur Ásgeir Jóhannesson
Karl Guðmundsson fundarritari




1.          Punkturinn
2007020097
3. liður úr fundargerð viðtalstíma bæjarfulltrúa dags. 14. febrúar 2008:
Lilja Hallgrímsdóttir, kt. 030532-4439, Anna Freyja Eðvarðsdóttir, kt. 160544-3419, Jóhanna Friðfinnsdóttir, kt. 030947-3989 og Patricia A. Jónsson, kt. 070133-4239, mættu í viðtalstíma bæjarfulltrúa og ræddu um framtíð Punktsins og uppsögn Kristbjargar Magnadóttur forstöðumanns.
Farið var yfir ástæður breytinganna í Rósenborg.
Bæjarráð dags. 29. febrúar 2008 vísar málinu til samfélags- og mannréttindaráðs.
Lagt fram til kynningar.


2.          Rekstraryfirlit 2007
2008030055
Lagt fram bráðabirgðayfirlit um rekstur stofnana undir ráðinu á árinu 2007.
Lagt fram til kynningar.
Samfélags- og mannréttindaráð þakkar forstöðumönnum fyrir góðan rekstur á sl. ári.


3.          Tómstundaávísanir
2008030056
Rætt var um væntanlegan fund með íþróttaráði um útfærslu á tómstundaávísunum bæjarins og áherslur samfélags- og mannréttindaráðs í þeim efnum.


4.          KFUM og K
2008030075
Jóhann Þorsteinsson frá KFUM og K mætti á fundinn og fór yfir starfsemi félagsins.


5.          Stefnumótun fyrir samfélags- og mannréttindadeild
2007020097
Rætt um hvort einfalda megi stefnumótun á vegum ráðsins en 3 viðamiklar stefnur eru á verksviði þess þ.e. fjölskyldustefna, jafnréttisstefna og forvarnastefna og rætt hefur verið um þörf fyrir heilsueflingarstefnu.


Samfélags-og mannréttindaráð telur rétt að lokið verði við endurskoðun jafnréttisstefnu og forvarnastefnu sem fyrst og málið síðan skoðað í tengslum við endurskoðun fjölskyldustefnunnar. Jafnframt verði við endurskoðun á stefnunum haft í huga hvort gera megi þær markvissari með fækkun verkefna og forgangsröðun þeirra.


6.          Menntasmiðjan
2007020097
Ingólfur Ásgeir Jóhannesson og Gerður Jónsdóttir lögðu fram eftirfarandi tillögu:
   "Ráðið lýsir yfir vilja sínum til að hlúa að og vernda starfsemi Menntasmiðju kvenna og Menntasmiðju unga fólksins. Breytingar sem kynnu að verða gerðar á menntasmiðjunum og fyrirkomulagi þeirra verða gerðar í samráði við stjórnendur hennar og fagfólk. Rætt verði við þá aðila sem hafa ráðlagt fólki að stunda nám í menntasmiðjunum í því skyni að styrkja þá þætti starfseminnar sem mestu skila notendum hennar."
Tillagan var felld með 3 atkvæðum gegn 2. Ingólfur Ásgeir Jóhannesson og Gerður Jónsdóttir greiddu atkvæði með tillögunni en Margrét Kristín Helgadóttir, Baldur Dýrfjörð og María Marinósdóttir greiddu atkvæði á móti.

Meirihluti samfélags- og mannréttindaráðs samþykkir að vísa frá framlagðri tillögu. Jafnframt bókar meirihlutinn eftirfarandi:
   "Sjálfsagt er að skoða alla möguleika á breytingum á starfsemi Menntasmiðjunnar sem eru til þess fallnar að auka starfsemi hennar og efla árangur og að því er unnið. Verið er að ræða við ýmsa þá fagaðila sem nýtt hafa sér tilboð Menntasmiðjunnar fyrir sína skjólstæðinga, með það að markmiði að efla starfsemina í samvinnu við þá aðila sem í dag eru að veita þjónustu á þessu sviði. Í vinnunni hingað til hefur verið haft að leiðarljósi að vernda þá hugmyndafræði sem lögð hefur verið til grundvallar í starfi Menntasmiðjunnar."

Ingólfur Ásgeir Jóhannesson og Gerður Jónsdóttir óska bókað að málinu verði vísað til úrskurðar bæjarstjórnar.



Fundi slitið.






Útlit síðu:

Haus_midbaer

Þetta vefsvæði byggir á Eplica