Stjórnkerfið

„Akureyri er alveg mátulega stór og aldrei tafir í umferðinni. Hér er allt til alls en maður nær andanum hér vegna þess að áreitið er hæfilegt. Svo er ekki verra að það tekur aðeins nokkrar mínútur að komast á skíði.” – Ásdís Arnardóttir

Samfélags - 3. október 2007



Samfélags- og mannréttindaráð - Fundargerð
21. fundur
3. október 2007   kl. 15:30 - 17:00
Trója vestur 2. hæð Rósenborg


Nefndarmenn Starfsmenn
Margrét Kristín Helgadóttir formaður
Kristinn Frímann Árnason
María Hólmfríður Marinósdóttir
Gerður Jónsdóttir
Margrét Ríkarðsdóttir
Katrín Björg Ríkarðsdóttir fundarritari




Alfa Aradóttir og Kristján Bergmann Tómasson sátu fundinn undir 1. lið. Bryndís Arnarsdóttir sat fundinn undir 1.- 4. lið.

1.          Ungmennaráð
2007080057
Lögð  fram drög að tillögum um stofnun ungmennaráðs.
Lagt fram til kynningar.


2.          Forvarnastefna - staða verkefna og endurskoðun 2007
2007090104
Farið yfir stöðu verkefna í forvarnastefnu bæjarins og rætt um endurskoðun stefnunnar.
Samfélags- og mannréttindaráð samþykkir að skipaður verði vinnuhópur til að endurskoða forvarnastefnuna. Tveir fulltrúar samfélags- og mannréttindaráðs munu sitja í hópnum og forvarnafulltrúi vera starfsmaður hans. Óskað er eftir tilnefningum frá skólanefnd, félagsmálaráði og íþróttaráði.


3.          Hjólreiðamenning á Akureyri - verkefni
2007090109
Kynning á hjólreiðaátaki við grunnskólana.
Samfélags- og mannréttindaráð lýsir yfir áhuga á verkefninu og vísar erindinu áfram til viðeigandi nefnda.


Gerður Jónsdóttir vék af fundi kl. 16.50.


4.          Hagir og líðan nemenda í 5.- 7. bekk - skýrsla
2007090110
Erindi dags. 26. september 2007 frá Jóni Sigfússyni f.h. Rannsóknar & greiningar þar sem boðin er til kaups skýrsla um hagi og líðan nemenda í 5.- 7. bekk á Akureyri.
Samfélags- og mannréttindaráð getur ekki orðið við erindinu.


5.          Stefnumótun fyrir samfélags- og mannréttindadeild
2007020097
Lögð fram drög að stefnu samfélags- og mannréttindaráðs um styrkveitingar.
Samfélags- og mannréttindaráð samþykkir framlögð drög.



Fundi slitið.






Útlit síðu:

Haus_kirkja3

Þetta vefsvæði byggir á Eplica