Beint í leiðarkerfi vefsins.
„Akureyri er alveg mátulega stór og aldrei tafir í umferðinni. Hér er allt til alls en maður nær andanum hér vegna þess að áreitið er hæfilegt. Svo er ekki verra að það tekur aðeins nokkrar mínútur að komast á skíði.” – Ásdís Arnardóttir
| Nefndarmenn | Starfsmenn | ||
| Ásgeir Magnússon formaður María Ingadóttir Ögmundur Haukur Knútsson | Karl Guðmundsson Halla M. Tryggvadóttir fundarritari | ||
1. TV einingar vegna markaðs- og samkeppnisaðstæðna
2009030034
Farið yfir reglur um úthlutun og úthlutanir frá því heimild til greiðslu TV eininga vegna markaðs- og samkeppnisaðstæðna var veitt í kjarasamningum.
Ákveðið að kanna stöðu á markaði varðandi þau störf sem úthlutað hefur verið TV einingum.
2. Stjórnendaálag - reglur 2009
2009030033
Umræða um endurskoðun á reglum Akureyrarbæjar um greiðslu stjórnendaálags.
Farið yfir núgildandi reglur um stjórnendaálag.
3. Kjör embættismanna 2009
2009030032
Farið yfir núgildandi reglur um kjör embættismanna hjá Akureyrarbæ.
4. Heimaþjónusta Akureyrarbæjar - akstur á einkabifreiðum
2009030024
Erindi dags. 1. mars 2009 frá Hörpu Garðarsdóttur og Hólmfríði Hreinsdóttur f.h. starfsmanna Heimaþjónustu Akureyrarbæjar þar sem óskað er eftir aukinni greiðslu fyrir akstur í tengslum við starf þeirra sem starfa hjá Heimaþjónustu Akureyrarbæjar. Einnig er óskað eftir staðfestingu á því að ef skjólstæðingur veldur tjóni á bifreið starfsmanns, muni Akureyrarbær greiða tjónið, sbr. tjón á öðrum eigum starfsmanna.
Starfsmannastjóra falið að leggja fram á næsta fundi tillögu að breyttum reglum um greiðslur til starfsmanna fyrir akstur.
Fundi slitið.