Beint í leiðarkerfi vefsins.
„Akureyri er alveg mátulega stór og aldrei tafir í umferðinni. Hér er allt til alls en maður nær andanum hér vegna þess að áreitið er hæfilegt. Svo er ekki verra að það tekur aðeins nokkrar mínútur að komast á skíði.” – Ásdís Arnardóttir
| Nefndarmenn | Starfsmenn | ||
| Oddur Helgi Halldórsson formaður
Tryggvi Þór Gunnarsson Sigmar Arnarsson Guðmundur Baldvin Guðmundsson Ólafur Jónsson Edward Hákon Huijbens áheyrnarfulltrúi Sigrún Stefánsdóttir áheyrnarfulltrúi Sigurður Guðmundsson áheyrnarfulltrúi |
| Karl Guðmundsson
Heiða Karlsdóttir fundarritari | |
1. Bæjarstjórn Akureyrar
- breytingar í nefndum
2010060027
Lögð fram tillaga um breytingu á skipan
fulltrúa L-lista svohljóðandi:
Skólanefnd:
Sigrún Björk Sigurðardóttir, kt. 040782-3629,
tekur sæti sem aðalmaður í stað Herdísar R. Arnórsdóttur, kt. 141269-3569.
Einnig lagðar fram tillögur um breytingar
á skipan fulltrúa Sjálfstæðisflokks svohljóðandi:
Umhverfisnefnd:
Kolbrún Sigurgeirsdóttir, kt. 090266-5789,
tekur sæti aðalmanns í stað Björns Ingimarssonar, kt. 301254-4079. Kristinn
Frímann Árnason, kt. 151268-5959, tekur sæti varamanns í stað Ragnars Sigurðssonar,
kt. 081280-3559.
Heilbrigðisnefnd Norðurlands eystra:
Sigurjón Jóhannesson, kt. 230666-5049,
tekur sæti aðalmanns í stað Kolbrúnar Sigurgeirsdóttur, kt. 090266-5789.
Jóna Jónsdóttir, kt. 030776-3809, tekur sæti varamanns í stað Kristins
Frímanns Árnasonar, kt. 151268-5959.
Bæjarráð hefur fullnaðarafgreiðsluheimild
í sumarleyfi bæjarstjórnar sbr. bókun í
3. lið fundargerðar bæjarstjórnar 29.
júní 2010.
Bæjarráð samþykkir tillögurnar.
2. Akureyrarkaupstaður
150 ára árið 2012
2009090008
Lögð fram tillaga um skipan fulltrúa
í undirbúningshóp vegna 150 ára afmælis Akureyrarkaupstaðar árið 2012.
Undirbúningshópinn skipi:
Tryggvi Þór Gunnarsson, kt. 130565-3959
Helena Þ. Karlsdóttir, kt. 280867-5789
Úlfhildur Rögnvaldsdóttir, kt. 010946-4849
Starfsmenn nefndarinnar verði Pétur
Bolli Jóhannesson skipulagsstjóri og Sigríður Stefánsdóttir verkefnastjóri.
Bæjarráð samþykkir tillöguna.
3. Stofnun Vigdísar
Finnbogadóttur - styrkbeiðni
2010070055
Erindi dags. 10. júlí 2010 frá Auði
Hauksdóttur forstöðumanni þar sem leitað er eftir styrk til byggingar fyrir
Stofnun Vigdísar Finnbogadóttur.
Bæjarráð getur ekki orðið við erindinu.
4. Frímerkjasöfn í eigu
Akureyrarbæjar
2010030089
Lagt fram minnisblað Karls Guðmundssonar
bæjarritara dags. 19. júlí 2010 varðandi frímerkjasöfn í eigu Akureyrarbæjar.
Á fundi bæjarráðs 18. mars sl., var bæjarritara falið að láta meta söfnin.
Einnig lagt fram samkomulag við Emelie J. Kvaran dags. 27. mars 2010 um
breytingu á skilmálum gjafagernings Jakobs H. Kvaran til Akureyrarbæjar
árið 1974.
Bæjarráð samþykkir að selja frímerkjasafn
Jakobs H. Kvaran og að andvirði þess verði ráðstafað í þágu aldraðra á
Akureyri.
5. Háskólinn á Akureyri
- samdráttur í starfsemi skólans
2010070085
Með tölvupósti dags. 19. júlí 2010 óskar
Edward H. Huijbens eftir að fá að kynna bréf Stefáns B. Sigurðssonar rektors
Háskólans á Akureyri til starfsmanna skólans er varðar fyrirhugaðan niðurskurð
í starfsemi skólans á árinu 2011.
Edward H. Huijbens lagði fram tillögu
að bókun svohljóðandi:
“Bæjarráð Akureyrar harmar niðurskurð
á opinberum framlögum til Háskólans á Akureyri árið 2010 og lýsir yfir
þungum áhyggjum af væntanlegum viðbótarniðurskurði árið 2011.
Akureyri er og hefur í gegnum tíðina
verið skólabær og Háskólinn á Akureyri hefur síðustu 20 árin leitt uppbyggingu
háskólastarfs á landsbyggðinni. Mjög nauðsynlegt er að háskólar fái að
starfa utan höfuðborgarsvæðisins. Beinir bæjarráð því til ríkisstjórnar
og ráðherra menntamála að standa vörð um rekstur og uppbyggingu háskólastarfs
á Akureyri.”
Bæjarráð samþykkir bókunartillöguna.
6. Launanefnd sveitarfélaga
- verkfallsboðun LSS
2010070089
Lagður fram til kynningar tölvupóstur
dags. 16. júlí 2010 frá Ingu Rún Ólafsdóttur sviðsstjóra kjarasviðs Sambands
íslenskra sveitarfélaga f.h. Launanefndar sveitarfélaga (LN) er varðar
verkfallsboðun Landssambands slökkviliðs- og sjúkraflutningamanna (LSS).
Halla Margrét Tryggvadóttir starfsmannastjóri
sat fundinn undir þessum lið.
7. Verslunarmannahelgin
- Ein með öllu 2010
2010070090
Erindi dags. 19. júlí 2010 frá Vinum
Akureyrar þar sem þeir óska eftir að opnunartími skemmtistaða verði lengdur
um verslunarmannahelgina 2010. Einnig óska þeir eftir að fá leyfi til að
efna til unglingaskemmtana í KA-heimilinu á laugardags- og sunnudagskvöldi
þessa sömu helgi frá kl. 23:00 til 03:00 bæði kvöldin.
Inga Þöll Þórgnýsdóttir bæjarlögmaður
mætti á fundinn undir þessum lið.
Bæjarráð bendir á að í gildandi lögreglusamþykkt
fyrir Akureyri er lengri opnunartími veitingahúsa heimilaður um verslunarmannahelgi
og telur ekki rök fyrir að auka hann enn frekar. Bæjarráð veitir leyfi
til að efna til áfengislausra unglingaskemmtana fyrir 16 ára og eldri á
laugardags- og sunnudagskvöldi frá
kl. 23:00 til 03:00 bæði kvöldin.
Gert er ráð fyrir því að boðið verði upp á strætisvagnaferðir heim strax
að unglingaskemmtunum loknum líkt og verið hefur.
8. Verslunarmannahelgin
- Ein með öllu 2010
2010070090
Erindi dags. 19. júlí 2010 frá Sýslumanninum
á Akureyri þar sem óskað er umsagnar um umsókn dags. 19. júlí 2010 frá
Kristófer Ívari Knutsen,
kt. 030890-2729, þar sem óskað er eftir
leyfi til að halda ball fyrir 14 ára og eldri í austasta hluta Slökkvistöðvar
Akureyrar.
Inga Þöll Þórgnýsdóttir bæjarlögmaður
sat fundinn undir þessum lið.
Bæjarráð tekur jákvætt í erindið
og setur eftirfarandi skilyrði fyrir dansleiknum:
Dansleikurinn verði auglýstur fyrir
aldurinn 14-16 ára.
Dansleikurinn verði auglýstur sem
áfengis- og vímuefnalaus skemmtun.
Tveir fulltrúar Samtaka, Samtökum
foreldrafélaga á Akureyri fái frían aðgang að dansleiknum til eftirlits.
Ströng dyravarðagæsla verði og auglýst
að framvísa verði skilríkjum við innganginn.
Bæjarritara falið að ganga frá leigugjaldi
og hugsanlegum strætisvagnaferðum.
Fundi slitið.