Stjórnkerfið

„Akureyri er alveg mátulega stór og aldrei tafir í umferðinni. Hér er allt til alls en maður nær andanum hér vegna þess að áreitið er hæfilegt. Svo er ekki verra að það tekur aðeins nokkrar mínútur að komast á skíði.” – Ásdís Arnardóttir

Bæjarráð - 24. júní 2010



Bæjarráð - Fundargerð
3228. fundur
24.06.2010   kl. 09:00 - 11:02
Bæjarstjórnarsalur á 4. hæð í Ráðhúsi


Nefndarmenn Starfsmenn
Oddur Helgi Halldórsson formaður
Geir Kristinn Aðalsteinsson
Halla Björk Reynisdóttir
Guðmundur Baldvin Guðmundsson
Ólafur Jónsson
Andrea Sigrún Hjálmsdóttir áheyrnarfulltrúi
Hermann Jón Tómasson áheyrnarfulltrúi
Sigurður Guðmundsson áheyrnarfulltrúi

Karl Guðmundsson
Dan Jens Brynjarsson
Dagný Magnea Harðardóttir fundarritari



Bæjarstjórn hefur á fundi sínum 15. júní sl. kosið aðal- og varamenn í bæjarráð til eins árs:

Aðalmenn:
Oddur Helgi Halldórsson formaður
Geir Kristinn Aðalsteinsson varaformaður
Halla Björk Reynisdóttir
Guðmundur Baldvin Guðmundsson
Ólafur Jónsson
Andrea Sigrún Hjálmsdóttir áheyrnarfulltrúi
Hermann Jón Tómasson áheyrnarfulltrúi
Sigurður Guðmundsson áheyrnarfulltrúi

Varamenn:
Tryggvi Gunnarsson
Hlín Bolladóttir
Inda Björk Gunnarsdóttir
Petrea Ósk Sigurðardóttir
Njáll Trausti Friðbertsson
Anna Hildur Guðmundsdóttir áheyrnarfulltrúi
Edward H. Huijbend áheyrnarfulltrúi
Sigrún Stefánsdóttir áheyrnarfulltrúi

Í upphafi fundar bauð formaður nýtt bæjarráð velkomið til starfa.


1.  Hrafnagilsstræti 12 - framkvæmdir á lóðarmörkum
2006100036
14. liður í fundargerð skipulagsnefndar dags. 27. maí 2010:
Bréf dags. 29. apríl 2010 frá Birni Sigurðssyni, Skólastíg 11 þar sem hann vísar í fyrri bréf sín dags. 5. október 2006, 27. mars 2007 og 24. júlí 2007 og bókun nefndarinnar frá 13. maí 2009 þar sem ekki hefur verið staðið við gefinn frest. Óskar hann eftir að málið verði því tekið upp aftur og eiganda Hrafnagilsstrætis 12 verði gert að framkvæma lagfæringar á lóðamörkum lóðanna fyrir 30. júní 2010.
Þar sem lóðarhafi Hrafnagilsstrætis 12 hefur ekki farið að þeim kröfum sem gerðar voru í bókun nefndarinnar 13. maí 2009 og bréfi dagsettu sama dag, leggur skipulagsnefnd því til við bæjarráð að samþykkja lokafrest til 30. júní 2010 til að lagfæra lóðamörkin og að lagðar verði dagsektir á lóðarhafa lóðarinnar Hrafnagilsstræti 12, að upphæð kr. 25.000 á dag, ef ekki verður staðið við gefinn frest.

Bæjarráð samþykkir tillögu skipulagsnefndar en framlengir gefinn frest til 8. júlí 2010.


2.  Baugatún - Fossatún, dagsektir
2010060004
15. liður í fundargerð skipulagsnefndar dags. 27. maí 2010:
Lagt var fram bréf frá skipulagsstjóra, dags. 26. maí 2010, ásamt afriti af bréfi skipulagsstjóra til Reisum byggingarfélags ehf, framkvæmdaraðila húsa við Baugatún og Fossatún. Í bréfinu er gerð tillaga um tímafrest og beitingu dagsekta til þess að knýja fram að framkvæmdaraðili leggi fram vottun á innfluttum hurðum eða að öðrum kosti skipti út útihurðum að Baugatúni 1, 2, 3, 5, 7, og 8 og Fossatúni 5 og 7 fyrir útihurðir sem hafa tilskylda umsögn eða vottun með vísan í gr. 120 og 121 í byggingarreglugerð 441/1998 og gr. 42 í skipulags- og byggingarlaga 73/1997.
Skipulagsnefnd samþykkir tillögu skipulagsstjóra og m.v.t. 1. mgr. 57 gr. skipulags- og byggingarlaga leggur nefndin til við bæjarráð að tillagan verði samþykkt en frestur til úrbóta verði framlengdur til 16. júní 2010

Bæjarráð samþykkir tillögu skipulagsnefndar en framlengir gefinn frest til 8. júlí 2010


3.  Norðurorka hf - ósk um lóð undir dæluhús
2010060036
Erindi dags. 1. júní 2010 frá Franz Árnasyni forstjóra Norðurorku hf þar sem hann fyrir hönd Norðurorku hf óskar eftir afmörkun lóðar undir dæluhús og önnur nauðsynleg mannvirki á borplani í landi Botns í Eyjafjarðarsveit.
Bæjarráð samþykkir að fela bæjarstjóra að ganga frá samningi við Norðurorku hf. um leigu á landi undir dælustöð og önnur nauðsynleg mannvirki í landi Botns.


4.  Sérfræðiþjónusta við skóla
2010030028
4. liður í fundargerð félagsmálaráðs dags. 26. maí 2010:
Karólína Gunnarsdóttir þjónustustjóri fjölskyldudeildar og Guðrún Sigurðardóttir framkvæmdastjóri fjölskyldudeildar kynntu stöðumat á framvindu vinnu fjölskyldudeildar, skóladeildar og heilsugæslunnar um ráðgjafar- og greiningarþjónustu við börn og barnafjölskyldur, auk þeirrar meðferðar sem deildir bæjarins bjóða upp á. Félagsmálaráð felur fjölskyldudeild og heilsugæslu að vinna áfram með skóladeild að samræmingu á því ráðgjafar- og meðferðarstarfi sem fram fer á deildunum. Jafnframt telur ráðið nauðsynlegt að bæta við hálfri stöðu skólasálfræðings í sérfræðiþjónustu leik- og grunnskóla frá og með næstu áramótum. Ráðið samþykkir að leggja til við bæjarráð að fjárveiting næsta árs taki mið af þessari tillögu.

Bæjarráð samþykkir að bæta við hálfri stöðu skólasálfræðings frá og með næstu áramótum og mun gera ráð fyrir því við gerð fjárhagsáætlunar vegna ársins 2011.


5.  Samvinnunefnd um svæðisskipulag Eyjafjarðar - 2010
2010060074
Erindi dags. 13. júní 2010 frá Bjarna Kristjánssyni formanni Samvinnunefndar um svæðisskipulag Eyjafjarðar þar sem óskað er eftir því að sveitastjórnir staðfesti sem fyrst áframhaldandi setu fulltrúa sinna eða tilkynni um skipan nýrra fulltrúa
Bæjarráð skipar Evu Reykjalín og Auði Jónasdóttur fulltrúa Akureyrarbæjar í Samvinnunefnd um svæðisskipulag Eyjafjarðar


6.  Starfsleyfi - Norðurskel ehf
2009110119
Erindi dags. 16. júní 2010 þar sem Fiskistofa óskar eftir umsögnum sveitarfélaga til að tryggja aðkomu þeirra að þeim stjórnsýsluákvörðunum sem varða m.a. svæðaskiptingu fiskeldis, staðsetningu fiskeldisstarfsemi og útgáfu rekstrarleyfa til fiskeldis. Umsögn Akureyrarbæjar er óskað fyrir 26. júní nk.
Guðmundur Baldvin Guðmundsson og Dan Jens Brynjarsson véku af fundi við umræðu og afgreiðslu málsins.
Bæjarráð gerir engar athugasemdir.



7.  Slökkvilið Akureyrar - ýmis málefni
2010050026
Lagt fram bréf dags. 18. júní 2010 frá Sigurjóni Magnússyni ehf þar sem óskað er eftir upplýsingum í 14 liðum varðandi ákvörðun um kaup á slökkvibifreið
Bæjarráð felur bæjarlögmanni og bæjartæknifræðingi að leggja drög að svari fyrir næsta fund bæjarráðs.


8.  Vinabæjarmót - tenglamót í Lahti 2010 - val fulltrúa
2009080061
Tekið fyrir að nýju, áður á dagskrá bæjarráðs 3. september 2009, en þá samþykkti bæjarráð að taka þátt í tenglamóti (kontaktmannamöte) í Lahti dagana 4.- 7. ágúst 2010 en láta nýjum meirihluta eftir að skipa fulltrúa til að taka þátt í mótinu.
Meirihluti bæjarráðs samþykkir að Oddur Helgi Halldórsson formaður bæjarráðs og Halla Björk Reynisdóttir formaður stjórnar Akureyrarstofu, ásamt mökum verði fulltrúar Akureyrarkaupstaðar á tenglamótinu í Lahti.

Ólafur Jónsson og Guðmundur Baldvin Guðmundsson sátu hjá við afgreiðslu


9.  Bæjarsjóður Akureyrar - yfirlit um rekstur 2010
2010050056
Lagt fram til kynningar yfirlit um rekstur aðalsjóðs janúar til apríl 2010.


10.  Greið leið ehf - aðalfundur 2010
2010060021
Lagt fram til kynningar minnisblað dags. 22. júní 2010 frá Karli Guðmundssyni bæjarritara vegna aðalfundar Greiðrar leiðar ehf sem haldinn var 16. júní sl.


11.  Prókúruumboð - 2010
2010060084
Lögð fram tillaga um prókúruumboð. Með vísan í 3. mgr. 55. greinar sveitarstjórnarlaga nr. 45/1998 heimilar bæjarráð bæjarstjóra að veita eftirtöldum starfsmönnum Akureyrarbæjar prókúruumboð: bæjarlögmanni - Ingu Þöll Þórgnýsdóttur, fjármálastjóra - Dan Jens Brynjarssyni og bæjarritara Karli Guðmundssyni. Umboðið nær til að undirrita skjöl varðandi kaup og sölu fasteigna sveitarfélagsins, lántökur og ábyrgðir svo og önnur skjöl sem fela í sér skuldbindingar eða ráðstafanir sem samþykki bæjarráðs og/eða bæjarstjórnar þarf til.
Bæjarráð samþykkir að framangreindum aðilum verði veitt prókúruumboð í samræmi við 55. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 45/1998. Umboðin gilda meðan viðkomandi gegnir tilteknu starfi fyrir Akureyrarbæ þó ekki lengur en til loka núverandi kjörtímabils bæjarstjórnar. Jafnframt eru eldri umboð úr gildi fallin.


12.  Önnur mál í bæjarráði
2010010117
Sigurður Guðmundsson lagði fram tillögu um að Ráðhústorgið yrði þökulagt í ár. Bæjarráð vísar tillögunni til framkvæmdaráðs.


Fundi slitið.






Útlit síðu:

Haus_kirkja3

Þetta vefsvæði byggir á Eplica