Beint í leiðarkerfi vefsins.
„Akureyri er alveg mátulega stór og aldrei tafir í umferðinni. Hér er allt til alls en maður nær andanum hér vegna þess að áreitið er hæfilegt. Svo er ekki verra að það tekur aðeins nokkrar mínútur að komast á skíði.” – Ásdís Arnardóttir
| Nefndarmenn | Starfsmenn | ||
| Sigrún Stefánsdóttir varaformaður Elín Margrét Hallgrímsdóttir Hjalti Jón Sveinsson Baldvin Halldór Sigurðsson Víðir Benediktsson Jóhannes Gunnar Bjarnason áheyrnarfulltrúi | Hermann Jón Tómasson Karl Guðmundsson Dan Jens Brynjarsson Heiða Karlsdóttir fundarritari | ||
1. Bæjarsjóður Akureyrar - yfirlit um rekstur janúar-apríl 2009
2009050054
Fyrir lá yfirlit um rekstur aðalsjóðs janúar til apríl 2009.
Guðrún Sigurðardóttir framkvæmdastjóri fjölskyldudeildar mætti á fundinn undir þessum lið.
Bæjarráð þakkar Guðrúnu fyrir komuna á fundinn.
2. Stapi lífeyrissjóður - ársfundur 2009
2009050011
Lögð fram fundargerð ársfundar Stapa lífeyrisjóðs dags. 28. maí 2009 ásamt ársskýrslu 2008.
Lagt fram til kynningar.
3. Tjaldsvæðið við Þórunnarstræti - samkomulag
2009060108
Lagt fram til kynningar samkomulag dags. 12. júní 2009 milli Skátafélagsins Klakks, Bílaklúbbs Akureyrar og Akureyrarbæjar vegna afnota á tjaldsvæðinu við Þórunnarstræti dagana 16.- 21. júní 2009.
Einnig lögð fram til kynningar drög að samkomulagi um samvinnu við rekstur á tjaldsvæðinu við Þórunnarstræti um bíladaga 16.- 21. júní 2009 milli Hamra - útilífs- og umhverfismiðstöðvar skáta og Bílaklúbbs Akureyrar.
Lagt fram til kynningar.
4. Þroskahjálp á Norðurlandi - ályktun aðalfundar 2009
2009060101
Lögð fram ályktun sem samþykkt var á aðalfundi Þroskahjálpar á Norðurlandi eystra 19. maí 2009.
Lagt fram til kynningar.
5. Ráðhústorg - þökulagning sumarið 2009
2009060115
Erindi dags. 16. júní 2009 frá Sigurði Guðmundssyni verslunarmanni f.h. áhugafólks um eflingu miðbæjarins á Akureyri þar sem þess er farið á leit við Akureyrarbæ að hann heimili og aðstoði við að þökuleggja Ráðhústorgið sumarið 2009.
Bæjarráð tekur vel í erindið og felur bæjarstjóra að ganga frá málinu.
Fundi slitið.