Beint í leiðarkerfi vefsins.
„Akureyri er alveg mátulega stór og aldrei tafir í umferðinni. Hér er allt til alls en maður nær andanum hér vegna þess að áreitið er hæfilegt. Svo er ekki verra að það tekur aðeins nokkrar mínútur að komast á skíði.” – Ásdís Arnardóttir
| Nefndarmenn | Starfsmenn | ||
| Sigrún Björk Jakobsdóttir formaður Elín Margrét Hallgrímsdóttir Sigrún Stefánsdóttir Baldvin Halldór Sigurðsson Oddur Helgi Halldórsson Jóhannes Gunnar Bjarnason áheyrnarfulltrúi | Hermann Jón Tómasson Dan Jens Brynjarsson Jón Bragi Gunnarsson Heiða Karlsdóttir fundarritari | ||
1. Samtök
iðnaðarins - upplýsingar um fjölda íbúða á byggingarstigi 4, 5 og 6
2010010142
Á fundi sínum þann 21. janúar sl. fól
bæjarráð skipulagsstjóra að taka saman upplýsingar sem Samtök iðnaðarins
óskuðu eftir um hve margar íbúðir séu skráðar á byggingarstigi 4, 5 og
6 samkvæmt ÍST 51 í fjölbýlishúsum, raðhúsum, parhúsum og einbýlishúsum,
sundurliðað eftir húsgerðum og hverfum. Einnig var óskað eftir upplýsingum,
ef til væru, um nýjar íbúðir á byggingarstigi 7 sem væru ónýttar og til
sölu.
Svar skipulagsstjóra var lagt fram til
kynningar á fundi bæjarráðs þann 15. apríl sl. en umræðu frestað til næsta
fundar.
Pétu Bolli Jóhannesson skipulagsstjóri
mætti á fundinn undir þessum lið og fór yfir stöðuna á íbúðamarkaði.
Samkvæmt upplýsingum frá skipulagsdeild
um stöðuna á byggingarframkvæmdum um síðustu áramót eru 272 íbúðir á byggingarstigi
2 (framkvæmdir hafnar), 36 íbúðir eru á byggingarstigi 3 (burðarvirki reist),
52 íbúðir á byggingarstigi 4 (fokhelt) og 18 íbúðir eru á byggingarstigi
5 (tilbúið undir tréverk).
Þetta gerir samtals 378 íbúðir sem
eru á ofangreindum byggingarstigum þ.e. byggingar sem ekki hafa verið teknar
í notkun.
2. Flokkun
Eyjafjörður ehf - aðalfundur 2010
2010040060
Erindi dags. 21. apríl 2010 frá Eiði
Guðmundssyni framkvæmdastjóra Flokkunar Eyjafjörður ehf þar sem boðað er
til aðalfundar félagsins miðvikudaginn 5. maí nk. kl. 15:00 að Skipagötu
14, Akureyri, 5. hæð.
Bæjarráð felur fjármálastjóra Dan
Jens Brynjarssyni að fara með umboð Akureyrarbæjar á fundinum.
3. Almannaheillanefnd
2008100088
Lögð fram til kynningar fundargerð almannaheillanefndar
dags. 23. apríl 2010.
4. Sveitarstjórnarkosningar
29. maí 2010
2010030124
Lagt fram erindi dags. 19. apríl 2010
frá formanni kjörstjórnar Akureyrar vegna komandi sveitarstjórnarkosninga
þann 29. maí nk. Þar kemur fram tillaga kjörstjórnar um að Akureyrarkaupstað
verði skipt í tólf kjördeildir, tíu á Akureyri, ein í Hrísey og ein í Grímsey.
Gerð er tillaga um að á Akureyri verði kjörstaður í Verkmenntaskólanum
á Akureyri, í Hrísey verði kjörstaður í Grunnskólanum í Hrísey og að í
Grímsey verði kjörstaður í félagsheimilinu Múla. Lagt er til að tveir kjörklefar
verði í hverri kjördeild á Akureyri en einn í Hrísey og í Grímsey.
Þá hefur kjörstjórn ennfremur ákveðið
að leggja til við bæjarráð að kjörfundur standi frá klukkan 09:00 til 22:00
á Akureyri, en frá klukkan 10:00 til 18:00 í Hrísey og í Grímsey.
Óskar kjörstjórn eftir því við bæjarráð
að ofangreindar tillögur verði samþykktar.
Bæjarráð samþykkir tillögur kjörstjórnar
Akureyrar.
5. Listasafnið
á Akureyri - endurnýjun þjónustusamnings
2010010121
4. liður í fundargerð stjórnar Akureyrarstofu
dags. 15. apríl 2010:
Upphaflega var ráðgert að framlengja
fyrri samning dags. 5. júlí 2005 með viðauka, en í ljósi þess að breytingar
eru gerðar á fjárhæðum og gildistíma varð að samkomulagi að vinna drög
að nýjum samningi. Jafnframt var lögð fram til umræðu úttekt á framkvæmd
síðasta samnings og kom Karl Guðmundsson bæjarritari á fundinn undir þeim
lið.
Stjórn Akureyrarstofu samþykkir samninginn
fyrir sitt leyti.
Bæjarráð samþykkir samninginn.
6. Samgöngu-
og sveitarsjórnarráðuneytið - uppbygging hjúkrunarrýma
2009070007
Lagt fram til kynningar ljósrit af bréfi
samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytisins til bæjarstjóra Mosfellsbæjar
dags. 20. apríl 2010 varðandi áætlun félags- og tryggingamálaráðuneytisins
um uppbyggingu hjúkrunarrýma í samstarfi við níu sveitarfélög.
7. Ríkisútvarpið
2008120007
Rætt um stöðu og horfur á starfsemi
Ríkisútvarpsins á Akureyri.
Bæjarráð Akureyrar mótmælir harðlega
niðurskurði á starfsemi Ríkisútvarpsins utan höfuðborgarsvæðisins.
Með endurskipulagningu sem nú er í undirbúningi er markvisst verið
að eyðileggja alla aðstöðu til dagskrárgerðar og útsendingar útvarpsefnis
frá landsbyggðinni. Ríkisútvarpið er útvarp allra landsmanna og er
fjármagnað með nefskatti sem hlýtur að leggja þær skyldur á herðar stofnuninni
að tryggja eðlilegt jafnvægi í fréttaflutningi af landinu öllu. Svæðisstöðvarnar
gegna jafnframt mikilvægu hlutverki í að bæta upplýsingagjöf og efla samkennd
íbúa á þeim svæðum sem þær þjóna.
Bæjarráð vekur athygli þingmanna
á gölluðum lögum um Ríkisútvarpið þar sem eina ákvæðið um starfsemi þess
á landsbyggðinni er: ,,Að koma upp aðstöðu til dagskrárgerðar og
útvarps utan höfuðborgarsvæðisins.” Bæjarráð gagnrýnir harðlega
hið þrönga sjónarhorn stjórnar og yfirmanna Ríkisútvarpsins sem birtist
í fyrirhuguðum aðgerðum og ítrekar fyrri bókanir sínar í þessu máli.
Bæjarráð skorar á stjórn RÚV og menntamálaráðherra
að endurskoða þessa ákvörðun áður en hún veldur óbætanlegu tjóni fyrir
mannlíf á landsbyggðinni.
8. Norðurskel
ehf - starfsleyfi
2009110119
Lögð fram til kynningar ákvörðun Umhverfisstofnunar
vegna útgáfu starfsleyfis fyrir Norðurskel ehf dags. 21. apríl 2010. Starfsleyfið
gildir til 1. maí 2022.
9. Viðhaldsátak
2010-2011
2010040075
Lagt fram minnisblað bæjarstjóra dags.
28. apríl 2010 ásamt minnisblaði frá Fasteignum Akureyrarbæjar.
Bæjarráð samþykkir að efnt verði
til sérstaks átaks í viðhaldi mannvirkja í eigu sveitarfélagsins. Mikilvægt
er að hafist verði handa við viðhald stúku á Akureyrarvelli samkvæmt fyrirliggjandi
áætlun og að jafnframt verði ráðist í viðgerðir á girðingu Lystigarðsins.
Að öðru leyti er stjórn Fasteigna Akureyrarbæjar og framkvæmdaráði
falin umsjón með átakinu.
Allt að 200 milljónum króna verði
veitt til verkefnisins á þremur árum, þar af verði 50 milljónum króna varið
til þess á þessu ári og er upphæðinni vísað til endurskoðunar fjárhagsáætlunar.
10. Ársreikningur
Akureyrarbæjar fyrir árið 2009 - síðari umræða
2009100098
6. liður í fundargerð bæjarstjórnar
dags. 27. apríl 2010:
Fram kom tillaga um að vísa ársreikningnum
til bæjarráðs og síðari umræðu í bæjarstjórn og var hún samþykkt með 11
samhljóða atkvæðum.
Bæjarráð vísar ársreikningi Akureyrarbæjar
fyrir árið 2009 til síðari umræðu í bæjarstjórn.
11. SÁÁ
- göngudeild á Akureyri
2010010194
Bæjarstjóri fór yfir stöðu málsins.
Lagt fram minnisblað bæjarstjóra dags.
28. apríl 2010.
Bæjarráð lítur svo á að rekstur SÁÁ
eigi skilyrðislaust að vera fjármagnaður af fjárlögum, en í ljósi aðstæðna
þá samþykkir bæjarráð að greiða allt að 3,3 milljónir króna til reksturs
göngudeildar SÁÁ á Akureyri á árinu 2010 og 5 milljónir króna á árinu 2011
að því tilskyldu að rekstri göngudeildarinnar verði haldið áfram með sambærilegum
hætti og verið hefur.
Bæjarráð felur bæjarstjóra að ganga
frá samningi um málið. Kostnaði vegna þessa, 3,3 milljónum króna, er vísað
til endurskoðunar fjárhagsáætlunar.
Fundi slitið.