Stjórnkerfið

„Akureyri er alveg mátulega stór og aldrei tafir í umferðinni. Hér er allt til alls en maður nær andanum hér vegna þess að áreitið er hæfilegt. Svo er ekki verra að það tekur aðeins nokkrar mínútur að komast á skíði.” – Ásdís Arnardóttir

Bæjarstjórn Akureyrar

Fundir bæjarstjórnar

Bæjarstjórnarfundir eru að jafnaði fyrsta og þriðja þriðjudag hvers mánaðar. Í júlí og ágúst er sumarleyfi bæjarstjórnar og hefur bæjarráð þá heimild til fullnaðarafgreiðslu mála. Fundirnir eru haldnir í bæjarstjórnarsalnum í Geislagötu 9, 4. hæð og hefjast kl. 16.00. Sjónvarpað er frá fundunum sama dag kl. 21.00 á sjónvarpsstöðinni N4. Upptökur frá fundunum er hægt að nálgast á heimasíðu Akureyrarbæjar frá hádegi næsta dags eftir fund.

--------------------

 

Bæjarstjórn - 3288 - Fundarboð 

3288. fundur

29. júní 2010  kl. 16:00 –

Bæjarstjórnarsalur á 4. hæð í Ráðhúsi

 

1. Afgreiðslur skipulagsstjóra 2010
  2010010128
  Lögð fram fundargerð afgreiðslufundar skipulagsstjóra 302. fundar dags. 9. júní 2010 með fullnaðarafgreiðslum erinda. Fundargerðin er í 9 liðum. Skipulagsstjóri óskar eftir staðfestingu bæjarstjórnar á öllum liðum fundargerðarinnar.
     
2. Afgreiðslur skipulagsstjóra 2010
  2010010128
  Lögð fram fundargerð afgreiðslufundar skipulagsstjóra 303. fundar dags. 23. júní 2010 með fullnaðarafgreiðslum erinda. Fundargerðin er í 11 liðum. Skipulagsstjóri óskar eftir staðfestingu bæjarstjórnar á liðum 1., 2., 3., 4., 5., 6., 7., 9. og 10. Aðrir liðir gefa ekki tilefni til ályktunar.
     
3. Bæjarstjórnarfundir í júlí og ágúst 2010
  2010060047
  Lögð fram tillaga um bæjarstjórnarfundi í júlí og ágúst 2010: Í samræmi við 7. og 47. grein samþykktar um stjórn Akureyrar og fundarsköp bæjarstjórnar samþykkir bæjarstjórn að í júlí og ágúst 2010 verði sumarleyfi bæjarstjórnar. Ekki verða haldnir fundir í bæjarstjórn í júlí og ágúst nema þörf krefji eða þriðjungur bæjarfulltrúa krefjist þess. Jafnramt er bæjarráði á þessum tíma heimiluð fullnaðarafgreiðsla þeirra mála sem það telur nauðsynlegt að fái afgreiðslu og lög mæla ekki gegn.
     
4. Gleráreyrar 1 - 10 - deiliskipulagsbreyting
  2010060101
  2. liður í fundargerð skipulagsnefndar dags. 23. júní 2010:
Skipulagsstjóri lagði fram tillögu að breytingu á deiliskipulagi lóða við Gleráreyrar 1-10.
Breytingarnar felast í:
a) Breyttum skipulagsmörkum til samræmis við aðliggjandi deiliskipulög.
b) Hringtorg á Borgarbraut er sett inn á skipulag. Vegtengingar, gönguleiðir og aðkoma inn á Glerártorg breytast til samræmis.
c) Gatnamót frá Borgarbraut inná lóð Gleráreyra 10, færast um 50m til austurs.
d) Lóð Gleráreyra 3 stækkar um 335 fm. vegna breyttrar legu Borgarbrautar og gatnamóta.
e) Lóð Gleráreyra 10 stækkar um 639 fm af sömu ástæðu.
f) Lega bílastæða, aðkomur og göngustígar breytast lítillega til samræmis við núverandi aðstæður.
Tillagan er unnin af X2 hönnun - skipulagi ehf., dags. 18. júní 2010.
Skipulagsnefnd óskar eftir að gert verði ráð fyrir almennum göngustíg frá Byggðavegi að Gleráreyrum og verði það sem kvöð á lóðinni nr. 6-8 við Gleráreyrar og leggur til við bæjarstjórn að tillagan þannig breytt verði auglýst skv. 1. mgr. 25. gr. skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997.
     
5. Miðbær suðurhluti - breyting á deiliskipulagi
  2010050038
  8. liður í fundargerð skipulagsnefndar dags. 27. maí 2010:
Skipulagsstjóri lagði fram endurskoðaða tillögu að breytingu á deiliskipulagi syðsta hluta miðbæjarskipulagsins sem nú er í gildi vegna umsóknar KFC um lóð undir starfsemi fyrirtækisins. Tillagan er unnin af X2, hönnun og skipulagi ehf, dags. 21. maí 2010.
Skipulagsnefnd óskar eftir að nýtingarhlutfallið á nýju lóðunum verði 0,75 og leggur til við bæjarstjórn að tillagan þannig breytt verði auglýst skv. 1. mgr. 25. gr. skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997.
     

Eftirtaldar fundargerðir eru lagðar fram til kynningar:

 

Bæjarráð 24. júní 2010

Íþróttaráð 23. júní 2010

Skipulagsnefnd 23. júní 2010

Framkvæmdaráð 25. júní 2010

Félagsmálaráð 24. júní 2010

 

Hægt er að nálgast fundargerðirnar á heimasíðu Akureyrarbæjar - www.akureyri.is - Stjórnkerfið - Fundargerðir

 

Akureyri 25. júní 2010

Karl Guðmundsson
bæjarstjóri

 

Áætlun um fundi bæjarstjórnar Akureyrar 2010

Næstu fundir:

 

-------------

7. september

21. september

-----------

5. október

19. október

------------

2. nóvember

16. nóvember

------------

7. desember

21. desember

------------

 





Útlit síðu:

Haus_kirkja3

Þetta vefsvæði byggir á Eplica