Stjórnkerfið

„Akureyri er alveg mátulega stór og aldrei tafir í umferðinni. Hér er allt til alls en maður nær andanum hér vegna þess að áreitið er hæfilegt. Svo er ekki verra að það tekur aðeins nokkrar mínútur að komast á skíði.” – Ásdís Arnardóttir

Stjórnkerfið

Stjórnkerfi Akureyrarbæjar

Stjórnkerfi Akureyrarbæjar er tvískipt eins og önnur opinber stjórnkerfi á Íslandi. Annars vegar er pólitíska kerfið, lýðræðislega kjörnir bæjarfulltrúar sem skipa bæjarstjórn og nefndir sem bæjarstjórn skipar samkvæmt Samþykkt um stjórn Akureyrar og fundarsköpum bæjarstjórnar. Æðsti yfirmaður pólitíska kerfisins er forseti bæjarstjórnar. Bæjarráð fer með fjármálastjórn bæjarins en aðrar fastanefndir sem bæjarstjórn skipar, fjalla um afmarkaða málaflokka. Bæjarstjórn heldur að jafnaði fundi tvisvar í mánuði en bæjarráð fundar vikulega. Aðrar nefndir funda eftir þörfum.

Hins vegar er embættismannakerfið, þ.e. ráðnir stjórnendur bæjarfélagsins með bæjarstjóra sem æðsta yfirmann. Á Akureyri skiptist þessi hluti stjórnkerfisins deildarskiptur og undir deildunum eru stofnanir bæjarins (skólarnir, sambýli o.s.frv.).

Ársskýrsla Akureyrarbæjar 2008 (pdf)

Ársskýrsla Akureyrarbæjar 2007 (pdf)

Ársskýrsla Akureyrarbæjar 2006 (pdf)

Ársskýrsla Akureyrarbæjar 2005 (pdf)

Ársskýrsla Akureyrarbæjar 2004 (pdf)





Útlit síðu:

Haus_kirkja3

Þetta vefsvæði byggir á Eplica