Hjá Akureyrarbæ starfa yfir 100
stjórnendur og markmið stjórnendahandbókarinnar er að auðvelda þeim aðgang að ýmsum upplýsingum sem þeir þurfa á að
halda í sínu starfi.
Stjórnun í nútímasamfélagi er flókið verkefni sem gerir miklar kröfur til þeirra sem gegna stjórnunarstörfum. Í hlutverki stjórnanda fellst áskorun sem krefst hæfni og vilja til að árangur náist. Jafnframt er ljóst að starf stjórnandans hefur mikil áhrif á gæði þeirrar þjónustu sem bærinn veitir íbúum sínum.
Á valstikunni hér til vinstri er að finna ýmsar gagnlegar upplýsingar fyrir stjórnendur s.s. um stjórnvaldsákvarðanir, SAP skrifborð stjórnandans og um hlutverk stjórnenda hjá Akureyrarbæ.

