Stjórnendur þurfa að hafa eftirfarandi áréttingu í huga:
Ertu meðvitaður/meðvituð um að þú sért að taka stjórnvaldsákvörðun í starfi og telur þú þig þekkja málsmeðferðarreglurnar sem gilda, þegar tekin er stjórnvaldsákvörðun? Vissir þú að ákvörðun getur reynst ólögmæt og bakað bænum skaðabótaskyldu ef brotið er á aðila við töku stjórnvaldsákvörðunar?
Eftirfarandi er skilgreining á stjórnvaldsákvörðun:
Þegar stjórnvald kveður einhliða á um rétt og/eða skyldu tiltekins/tiltekinna aðila í ákveðnu máli í skjóli stjórnsýsluvalds. Ef um er að ræða stjórnvaldsákvörðun gilda málsmeðferðareglur stjórnsýslulaga.
Dæmi um stjórnvaldsákvörðun:
Gagnvart borgurunum
-
Þegar aðila er synjað um húsaleigubætur
-
Þegar aðila er synjað um aðgang að gögnum
-
Þegar byggingarleyfi er veitt/hafnað
-
Þegar veitt er aðvörun vegna hundaleyfis
-
Þegar félagslegur styrkur er veittur
-
Þegar lagðar eru dagsektir á framkvæmdaaðila
Gagnvart starfsmönnum stjórnsýslunnar
-
Þegar ráðið er í starf
-
Þegar áminning er veitt
-
Þegar starfsmanni er sagt upp störfum
Ef um stjórnvaldsákvörðun er að ræða þarf að huga að hæfisreglum, tilkynningaskyldu, leiðbeiningarskyldu, málshraða, rannsóknarreglu, andmælarétti, jafnræðisreglu, meðalhófsreglu, upplýsingarétti, birtingu og leiðbeiningu við birtingu ákvörðunar. Þá þarf stjórnandi að kunna skil á málefnalegum rökstuðningi fyrir ákvörðun, endurupptöku og kærurétti.
Ef þú ert í vafa eða þarft að sækja þér upplýsingar, ráðgjöf eða aðstoð þá vinsamlega hafðu samband við bæjarlögmann í tíma, strax við undirbúning og meðferð máls.
Bæjarlögmaður heldur reglulega námskeið um málsmeðferðarreglur stjórnsýslulaga. Ef þú hefur ekki enn sótt slíkt námskeið eða vilt hressa upp á þekkinguna þá er mælst til þess að þú gerir það við fyrsta tækifæri.
Leiðbeiningar þegar stjórnvaldsákvörðun er birt
Hér er að finna leiðbeiningar sem skulu fylgja bréfi til aðila þegar stjórnvaldsákvörðun er birt. Vinsamlega lesið vel og aðgætið hvort réttar leiðbeiningar fylgi ekki örugglega í bréfum til aðila á ykkar starfssviði. Ef eitthvað er óljós eða óskað frekari upplýsinga, þá vinsamlega hafið samband við bæjarlögmann.

