Stjórnendafræðsla

Á hverjum vetri er boðið upp á fjölbreytta stjórnendafræðslu sem stendur öllum stjórnendum og bæjarfulltrúum hjá Akureyrarbæ til boða. Markmiðið með

Flýtilyklar

Stjórnendafræðsla

Stjornendur_mars06_2Á hverjum vetri er boðið upp á fjölbreytta stjórnendafræðslu sem stendur öllum stjórnendum og bæjarfulltrúum hjá Akureyrarbæ til boða.

Markmiðið með stjórnendafræðslunni er að styrkja stjórnendur í starfi með því að veita fræðslu um ýmis sameiginleg málefni.

Námskeið, fræðslufundir og starfsdagar eru haldnir reglulega og þar gefst stjórnendum gott tækifæri til að eiga góðar stundir saman, skiptast á skoðunum og efla liðsandann.

Kostnaður við fræðsluna er greiddur úr sameiginlegum sjóði og því eru námskeiðsgjöld ekki innheimt nema í undantekningartilfellum.

Stjórnendur eru hvattir til að líta upp úr daglegu amstri, sækja námskeið, sem geta veitt bæði innblástur og hvatningu, og hitt í leiðinni aðra stjórnendur hjá Akureyrarbæ.

Hér fyrir neðan má finna námsáætlanir stjórnendafræðslunnar til haustsins 2009.

Árið 2010 var tekið í notkun fræðsludagatal á stjórnendahandbókinni  þar sem námsáætlun stjórnendafræðslunnar birtist.

Námsáætlun haust 2009

Námsáætlun vor 2009

Námsáætlun haust 2008

Námsáætlun vor 2008

Námsáætlun_haust_2007

Námsáætlun vor 2007

Námsáætlun haust 2006

Námsáætlun vor 2006

Akureyri öll lífsins gæði
miðvikudagur 23.05. 2012
kl. 01:59
+8.2°SSA 4 m/s
 

Geislagata 9, 600 Akureyri     |     Sími 460 1000     |     Bréfasími 460 1001     |     Kennitala 410169-6229     |     Opið alla virka daga milli kl. 8-16