Starfsendurhæfingarsjóður

  Akureyrarbær greiðir í Starfsendurhæfingarsjóð vegna flestra starfsmanna sinna.  Hlutverk Starfsendurhæfingarsjóðs er að draga markvisst úr líkum á því

Flýtilyklar

Starfsendurhæfingarsjóður

VIRK Starfsendurhæfingarsjóður 

Akureyrarbær greiðir í Starfsendurhæfingarsjóð vegna flestra starfsmanna sinna.  Hlutverk Starfsendurhæfingarsjóðs er að draga markvisst úr líkum á því að launafólk hverfi af vinnumarkaði vegna varanlegrar örorku, með aukinni virkni, eflingu endurhæfingar og öðrum úrræðum.

Meginverkefni Starfsendurhæfingarsjóðs eru að:

  • Skipuleggja og hafa umsjón með störfum ráðgjafa sem starfa aðallega á vegum sjúkrasjóða stéttarfélaganna og munu aðstoða einstaklinga sem þurfa á endurhæfingu að halda. Starfsendurhæfingarsjóður greiðir kostnaðinn af störfum ráðgjafanna ásamt því að hafa umsjón og eftirlit með starfi þeirra og veita þeim faglegan stuðning. Sérstök áhersla er lögð á snemmbært inngrip með starfsendurhæfingarúrræðum í samstarfi við sjúkrasjóði og atvinnurekendur.
  • Greiða kostnað af ráðgjöf ýmissa fagaðila um mótun sérstakrar einstaklingsbundinnar endurhæfingaráætlunar, s.s. lækna, sálfræðinga, iðjuþjálfa, sjúkraþjálfa, félagsráðgjafa, náms- og starfsráðgjafa o.s.frv.
  • Greiða fyrir kostnað við úrræði og endurhæfingu með áherslu á að auka vinnugetuna, til viðbótar því sem þegar er veitt af hinni almennu heilbrigðisþjónustu í landinu.

Nánari upplýsingar um sjóðinn er hægt að fá á heimasíðunni www.virk.is

Akureyri öll lífsins gæði
miðvikudagur 23.05. 2012
kl. 01:54
+8.2°SSA 4 m/s
 

Geislagata 9, 600 Akureyri     |     Sími 460 1000     |     Bréfasími 460 1001     |     Kennitala 410169-6229     |     Opið alla virka daga milli kl. 8-16