Allt starfsfólk Akureyrarbæjar á rétt á því að komið sé fram við það af virðingu og að það hafi tækifæri til að vinna störf sín án þess að eiga á hættu einelti og kynferðislega áreitni.
Akureyrarbær ber sem atvinnurekandi ábyrgð á því að koma í veg fyrir að starfsfólk og skjólstæðingar verði fyrir kynferðislegri áreitni eða öðru einelti.
Gefnar hafa verið út leiðbeiningar sem gagnast ættu þolanda eineltis/kynferðislegrar áreitni og yfirmanni sem fær slík mál til úrlausnar. Einnig hefur verið gefið út veggspjald með upplýsingum um hvert hægt sé að leita komi upp kynferðisleg áreitni eða einelti á vinnustað.
Leiðbeiningarnar er hægt að nálgast hér og veggspjaldið hjá jafnréttisráðgjafa eða starfsmannaþjónustu.

