Starfsáætlanagerð

Í starfsáætlunum fastanefnda eru markmið bæjarstjórnarmeirihlutans útfærð fyrir kjörtímabilið. Áhersluverkefni í stefnu meirihlutans eru sett fram sem markmið til að vinna að en síðan eru skilgreindar aðgerðir á hverju ári sem nauðsynlegar eru taldar til að ná þessum markmiðum. Gerð er kostnaðaráætlun fyrir hverja aðgerð, sundurliðuð niður á ár til loka kjörtímabils. Loks eru skilgreindir árangursmælikvarðar fyrir hvert markmið og gerð grein fyrir hvernig mælingar skuli fara fram og hvaða árangur sé áætlaður á hverju ári.Akureyri_-_sjor

Fyrir starfsáætlanir fastanefnda er notað þetta form.

Starfsáætlanir deilda og stofnana vinnur hver stjórnandi eftir eigin hentisemi.