Námskeið, hópefli og kynningar í boði fyrir vinnustaði Akureyrarbæjar

Stutt kynning á Gegnir.is og Timarit.is – Amtsbókasafnið

Lýsing:          Á kynningunni er farið yfir "Mínar síður" í bókasafnskerfinu Gegni. Sýnt hvernig notendur geta skráð sig og skoðað hvaða gögn þeir eru með í láni, hvernig hægt er að endurnýja lán á netinu og sjá hvað er til á Amtsbókasafninu og hvernig millisafnalán eru pöntuð. Einnig farið stuttlega í leit í kerfinu. Á timarit.is verður sýnt hvernig hægt er að leita að greinum í gömlum dagblöðum, bæði eftir efni og dagsetningum.

Leiðbeinendur: Starfsfólk Amtsbókasafnsins

Lengd:              30-45 mínútur

Staður:             Á vinnustöðum t.d. á starfsmannafundum

Fjöldi:               Ótakmarkað

Búnaður:          Nettengd tölva og skjávarpi

Trommuhópefli –Tónlistarskólinn á Akureyri

Lýsing: Trommuhópefli fyrir starfsmannahópa í samstarfi við Tónlistarskólann. Allir fá trommur og tromma saman upp stemninguna undir stjórn Ingva Rafns Ingvasonar. Leiðbeinandi: Ingi Rafn Ingvason frá Tónlistarskólanum á Akureyri

Fyrir hverja?: Vinnustaði sem vilja efla og samhæfa starfshópinn

Lengd: 1 klukkustund

Staður: Á vinnustöðum

Fjöldi: 10-12 í hvert sinn

Kostnaður: 30.000 kr.

Lífsspeki fisksins

Lýsing:             Lífsspeki fisks felur í sér fjögur einföld boðorð sem jafnframt eru einfaldar leiðir til þess að láta sér líða betur í vinnunni. FISK boðorðin fjögur eru:

  • Að leika sér
  • Að velja sér viðhorf
  • Að gera viðskiptavinum/samstarfsfólki daginn eftirminnilegan
  • Að vera til staðar (vera þar)

Á námskeiðinu er fjallað um lífspeki fiskisins og horft á dvd mynd frá Pike Place fiskmarkaðnum í Seattle. Unnin eru hópverkefni sem hafa það að markmiði að hjálpa starfsfólki að tileinka sér boðorðin fjögur.

Leiðbeinandi:    Ingunn Helga Bjarnadóttir, verkefnastjóri starfsþróunar

Fyrir hverja?:    Vinnustaði sem vilja bæta starfsandann

Lengd:              3 klukkustundir

Staður:             Á vinnustöðum

Fjöldi:               20-30 á hvert námskeið

Búnaður:          Skjávarpi og tölva

Kostnaður:      5000 kr. (Kostnaður vegna DVD myndar)

Starfsmannasamtöl - undirbúningur starfsfólks

Lýsing:             Samkvæmt mannauðsstefnu Akureyrarbæjar skulu starfsmannasamtöl fara fram árlega á öllum vinnustöðum. Markmið námskeiðsins er að fræða starfsfólk um tilgang starfsmannasamtala og kynna fyrir þeim leiðir til að undirbúna sig fyrir samtalið. 

Leiðbeinandi:    Ingunn Helga Bjarnadóttir, verkefnastjóri starfsþróunar

Fyrir hverja?:    Starfsfólk á vinnustöðum þar sem starfsmannasamtöl eru framundan

Lengd:              1 klukkustund

Staður:             Á vinnustöðum

Fjöldi:               Ótakmarkað

Búnaður:          Skjávarpi og tölva

Starfsmannahandbók og http://eg.akureyri.is

Lýsing:             Stutt kynning á starfsmannahandbók Akureyrarbæjar og starfsmannavefnum http://eg.akureyri.is. Mögulegt að koma til dæmis inn á starfsmannafundi.

Leiðbeinandi:    Ingunn Helga Bjarnadóttir, verkefnastjóri starfsþróunar

Fyrir hverja?:    Vinnustaði Akureyrarbæjar

Lengd:              30 mínútur

Staður:             Á vinnustöðum t.d. á starfmannafundum.

Fjöldi:               Ótakmarkað

Búnaður:          Nettengd tölva og skjávarpi