Markmið Mannauðssjóðs Kjalar er að stofna og reka sameiginlegan starfsmenntunarsjóð á grundvelli kjarasamnings KJALAR stéttarfélags og Launanefndar sveitarfélaga, sbr. gr. 13.4.2 í kjarasamningi frá 29. maí 2005. Sjóðurinn starfar einnig á grundvelli sambærilegra ákvæða í öðrum kjarasamningum KJALAR.
Sjóðurinn sinnir markmiðum sínum á sviði símenntunar og mannauðs með því að veita styrki til:
a) sveitarfélaga, stofnana og vinnuveitenda sem greiða í sjóðinn,
b) KJALAR stéttarfélags og
c) verkefna sem sjóðsstjórn skipuleggur eða á aðkomu að.
Vinnustaðir Akureyrarbæjar geta þannig sótt um styrki til Mannauðssjóðs Kjalar til námskeiðahalds eða annarrar símenntunar fyrir starfsfólk sitt sem jafnframt er í stéttarfélaginu KJÖLUR.
Umsóknir skal senda til stjórn sjóðsins þar sem fram kemur lýsing á því verkefni sem sótt er um styrk til, skipulagi þess, efnisinntaki, áætlaðri framkvæmd, kostnaði, öðrum styrkjum og framlagi umsækjanda.
Mannauðssjóður KJALAR hefur gert samkomulag um aðgegni félagsmanna KJALAR sem starfa hjá sveitarfélögum og sjálfseignastofnunum að námskeiðum sem Starfsmennt heldur. Mannauðssjóður Kjalar mun greiða fyrir þátttakendur og verða þá námskeiðin þeim að kostnaðarlausu.

