Fræðslusjóðir

Fræðslusjóðir eru reknir af stéttarfélögunum. Starfsfólk er hvatt til þess að kynna sér fræðslusjóðina og nýta sem best þá möguleika til starfsmenntunar sem þar eru fyrir hendi. Starfsfólk getur sótt um styrki til þess að sækja ýmis námskeið.

Starfsfólk í Einingu Iðju getur sótt um styrki til starfsmenntunar í Sveitamennt.

Starfsfólk í Kili getur sótt um styrki til starfsmenntunar í Fræðslusjóð Kjalar.

Starfsfólk í BHM félögum geta sótt um styrki til starfsmenntunar í Starfsmenntunarsjóð Bandalags háskólamanna.

Grunnskólakennarar geta sótt um styrki til starfsmennturnar í Verkefna- og námsstyrkjasjóð (Vonarsjóður).

Leikskólakennarar geta sótt um styrki til starfsmenntunar í Vísindasjóð leikskólakennara.

Tónlistarskólakennarar geta sótt um styrki til starfsmenntunar í Starfsmenntunarsjóð Félags tónlistarskólakennara.

Tónlistarskólakennarar í stéttarfélaginu Kjölur geta sótt um styrki til starfsmenntunar í Vísindasjóð vegna tónlistarskólakennara.