Internetþjónusta

Allar stofnanir og starfsmenn Akureyrarbæjar njóta Internetþjónustu og tölvupóst­þjónustu frá miðlægum netþjónum þar sem ruslpóstur er síaður frá öðrum pósti eftir föngum og haldið er uppi öflugum veiruvörnum. Veiruvarnir eru settar upp á allar útstöðvar á netkerfinu. Innlend Internetnotkun er gjaldfrjáls en Þekking mælir erlenda vefnotkun hjá hverri stofnun og rukkar fyrir hana.